Bæjarstjórn

3323. fundur 19. júní 2012 kl. 16:00 - 17:27 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson 1. varaforseti
  • Hlín Bolladóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Brynjar Davíðsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Sigríður María Hammer
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Heiða Karlsdóttir ritari bæjarstjóra
Dagskrá

1.Áfangar í átt til jafnréttis kynjanna - kvenréttindadagurinn 19. júní 2012

Málsnúmer 2012020092Vakta málsnúmer

Hlín Bolladóttir bæjarfulltrúi minntist þess að nú eru 30 ár frá því konur urðu í fyrsta sinn fleiri en ein í bæjarstjórn Akureyrar.
Af því tilefni var þeim þremur konum sem sátu sem kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn fyrir 30 árum boðið að sitja fund bæjarstjórnar í dag. Sigfríður Þorsteinsdóttir og Úlfhildur Rögnvaldsdóttir mættu til fundarins, en auk þeirra sat Valgerður H. Bjarnadóttir í bæjarstjórn á þeim tíma.

2.Bæjarstjórn Akureyrar - skoðunarmenn reikninga

Málsnúmer 2010060027Vakta málsnúmer

Samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 er ekki gert ráð fyrir að bæjarstjórn kjósi skoðunarmenn reikninga.
Með vísan til þess er lögð fram tillaga um að leysa skoðunarmenn reikninga hjá Akureyrarbæ frá störfum.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að Gunnar Jónsson og Unnsteinn Jónsson og varamenn þeirra Hafdís Freyja Rögnvaldsdóttir og Hanna Dögg Maronsdóttir verði leyst frá störfum sem skoðunarmenn reikninga.

3.Drottningarbraut, siglingaklúbburinn Nökkvi - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer SN090090Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 13. júní 2012:
Vinnuhópur vegna deiliskipulagsgerðar á félagssvæði Nökkva fundaði þann 12. júní 2012 um tillögu að deiliskipulagi svæðisins og leggur til að tillagan verði send skipulagsnefnd til umfjöllunar.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu á svæði Nökkva, félags siglingarmanna á Akureyri. Tillagan er dags. 13. júní 2012 og unnin af Teikn á lofti ehf.
Skipulagsnefnd samþykkir að tillögunni verði breytt á þann veg að um heildarendurskoðun á skipulaginu verði að ræða og eldra deiliskipulag verði fellt úr gildi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan þannig breytt verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Gata mánans 4 - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2012030136Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 13. júní 2012:
Erindi dags. 12. mars 2012 frá Árna Árnasyni þar sem hann f.h. Eimskipa Íslands ehf, kt. 421104-3520, leggur fram fyrirspurn um hvort leyfi fengist til að stækka húsið Gata mánans 4 um 4 m til norðurs.
Erindið var grenndarkynnt þann 9. maí og lauk kynningunni 6. júní 2012. Ein athugasemd barst.
1) Óskar B. Hauksson f.h. Tryggingarmiðstöðvarinnar (TM) sem hafnar breytingartillögunni án raka.
Samþykki eigenda fjögurra húsa á breytingunni barst með tölvupósti 12. júní 2012.
Skipulagsnefnd getur ekki tekið afstöðu til athugasemdarinnar þar sem efnisleg rök fyrir höfnun liggja ekki fyrir.
Skipulagsnefnd leggur því til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Gatnagerðargjöld - breytingar

Málsnúmer 2012060062Vakta málsnúmer

8. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 13. júní 2012:
Formaður skipulagsnefndar leggur fram tillögu að breytingum á gjaldskrá gatnagerðargjalda. Breytingarnar eru tvíþættar:
Annarsvegar er lagt til að 20% afsláttur frá gatnagerðargjaldi skv. gjaldskrá verði framlengdur til 30. júní 2013 eða í eitt ár og hinsvegar að gatnagerðargjaldskráin verði tengd á ný við vísitölu byggingarkostnaðar og munu því upphæðir breytast mánaðarlega í takt við vísitöluna hverju sinni.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og bæjarlögmanni falið að annast gildistöku hennar með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Samþykkt um búfjárhald í Akureyrarkaupstað - endurskoðun

Málsnúmer 2010080055Vakta málsnúmer

Lögð fram á ný tillaga að nýrri búfjársamþykkt, eftir endurskoðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða búfjársamþykkt með 9 atkvæðum gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista.

Fjarverandi var Hlín Bolladóttir L-lista.

7.Forsetakosningar 30. júní 2012 - undirkjörstjórnir

Málsnúmer 2012040028Vakta málsnúmer

Lagður fram listi með nöfnum þrjátíu og sex aðalmanna og þrjátíu og sex varamanna í undirkjörstjórnir við forsetakosningar 30. júní 2012.
Þar sem ekki komu fram fleiri nöfn en kjósa á lýsti forseti þetta fólk réttkjörið sem aðal- og varamenn í undirkjörstjórnir.

8.Stefnuumræða/stöðuskýrsla í bæjarstjórn 2012 - stjórn Akureyrarstofu

Málsnúmer 2012010347Vakta málsnúmer

Starfsáætlun/stöðuskýrsla stjórnar Akureyrarstofu.
Halla Björk Reynisdóttir formaður stjórnar Akureyrarstofu gerði grein fyrir áætluninni.
Almennar umræður urðu í kjölfarið.

 

9.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Bæjarráð 7. og 14. júní 2012
Skipulagsnefnd 13. júní 2012
Afgreiðslufundur skipulagsstjóra 6. og 13. júní 2012
Framkvæmdaráð 8. júní 2012
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar 8. júní 2012
Skólanefnd 4. júní 2012
Íþróttaráð 7. júní 2012
Samféla

Fundi slitið - kl. 17:27.