Forsetakosningar 30. júní 2012

Málsnúmer 2012040028

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3322. fundur - 07.06.2012

Lagt fram erindi dags. 1. júní 2012 frá formanni kjörstjórnar Akureyrar vegna komandi forsetakosninga þann 30. júní nk. Þar kemur fram tillaga kjörstjórnar um að Akureyrarkaupstað verði skipt í tólf kjördeildir, tíu á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey. Gerð er tillaga um að á Akureyri verði kjörstaður í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hrísey verði kjörstaður í Hríseyjarskóla og að í Grímsey verði kjörstaður í félagsheimilinu Múla. Lagt er til að tveir kjörklefar verði í hverri kjördeild á Akureyri, Hrísey og í Grímsey. Þá hefur kjörstjórn ennfremur ákveðið að leggja til við bæjarráð að kjörfundur standi frá klukkan 09:00 til 22:00 á Akureyri, en frá klukkan 10:00 til 18:00 í Hrísey og í Grímsey. Óskar kjörstjórn eftir því við bæjarráð að ofangreindar tillögur verði samþykktar.

Bæjarráð samþykkir tillögur kjörstjórnar.

Bæjarstjórn - 3323. fundur - 19.06.2012

Lagður fram listi með nöfnum þrjátíu og sex aðalmanna og þrjátíu og sex varamanna í undirkjörstjórnir við forsetakosningar 30. júní 2012.
Þar sem ekki komu fram fleiri nöfn en kjósa á lýsti forseti þetta fólk réttkjörið sem aðal- og varamenn í undirkjörstjórnir.