Bæjarstjórn

3506. fundur 15. febrúar 2022 kl. 16:00 - 16:07 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Andri Teitsson
  • Hlynur Jóhannsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Gunnar Gíslason
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Heimir Haraldsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá

1.Tímabundin heimild til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga v. farsóttar af völdum COVID-19

Málsnúmer 2022020532Vakta málsnúmer

Vegna farsóttar af völdum COVID-19 hefur innviðaráðherra 2. febrúar sl. auglýst eftirfarandi ákvörðun, með vísan til 1. mgr. 131. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011:

Til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitar­félaga er öllum sveitarstjórnum heimilt að taka ákvarðanir sem fela í sér tímabundin frávik frá ákvæðum sam­þykkta þeirra um stjórn sveitarfélaga, sem mæla fyrir framkvæmd fjarfunda, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitar­stjórnarlaga.

Sveitarstjórnum er heimilt að taka þessar ákvarðanir á fundi þar sem allir fundarmenn taka þátt í fundinum með rafrænum hætti.

Heimild þessi öðlast þegar gildi og gildir til 31. mars 2022.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að heimilt verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og fastanefnda Akureyrarbæjar og engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem taka þátt í fundum bæjarstjórnar og nefnda sveitarfélagsins í fjarfundarbúnaði. Heimildin gildir til 31. mars 2022.
Fylgiskjöl:

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2021-2024 - viðauki

Málsnúmer 2020030454Vakta málsnúmer

Liður 1 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 3. febrúar 2022:

Lagður fram viðauki 7.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs og Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir viðauka 7 með fimm samhljóða atkvæðum og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti efni viðaukans.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka 7 með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Óseyri 1 - umsókn um breytingu á skipulagi

Málsnúmer 2022020242Vakta málsnúmer

Liður 7 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 9. febrúar 2022:

Erindi Kristjáns Páls Hrafnkelssonar dagsett 3. febrúar 2022 fyrir hönd Módelhúsa ehf. þar sem óskað er eftir tilfærslu á vestari lóðarmörkum Óseyrar nr. 1. Suðvesturhorn lóðar yrði fært til vesturs um 7 m og norðvesturhorn lóðar yrði fært til austurs um 7 m. Nýtingarhlutfall lóðar yrði aukið úr 0,38 í 0,5. Byggingarreitur merktur A á gildandi deiliskipulagi yrði stækkaður til norðurs þannig að koma mætti fyrir 2000 m² byggingu. Þá yrði bílastæðum innan lóðarinnar fjölgað í 80-90 stæði í stað 71 samkvæmt gildandi skipulagi.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki að gerð verði breyting á deiliskipulagi Óseyrar sunnan Krossanesbrautar og deiliskipulagi Stórholts - Lyngholts til samræmis við erindið og að breytingin verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Þórhallur Jónsson kynnti tillögu skipulagsráðs.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að gerð verði breyting á deiliskipulagi Óseyrar sunnan Krossanesbrautar og deiliskipulagi Stórholts - Lyngholts til samræmis við erindið og að breytingin verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2022010392Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 3. og 10. febrúar 2022
Bæjarráð 3. og 10. febrúar 2022
Fræðslu- og lýðheilsuráð 7. febrúar 2022
Skipulagsráð 9. febrúar 2022
Umhverfis- og mannvirkjaráð 28. janúar 2022
Velferðarráð 2. febrúar 2022

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 16:07.