Bæjarstjórn

3499. fundur 05. október 2021 kl. 16:00 - 16:08 Hamrar í Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Andri Teitsson
  • Hlynur Jóhannsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Gunnar Gíslason
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Heimir Haraldsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Unnar Jónsson
  • Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Unnar Jónsson S-lista mætti í forföllum Hildu Jönu Gísladóttur.
Forseti bauð Unnar velkominn á hans fyrsta fund í bæjarstjórn.

Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða til að setja á dagskrá breytingar á skipan fulltrúa í umhverfis- og mannvirkjaráði sem verði 7. liður á dagskrá. Var það samþykkt. Einnig tilkynnti formaður að liðurinn skýrsla bæjarstjóra félli niður.

1.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - lausnarbeiðni

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi Ingibjargar Ólafar Isaksen bæjarfulltrúa B-lista dagsett 29. september 2021 þar sem hún óskar eftir lausn frá störfum í bæjarstjórn Akureyrar og öðrum nefndum á vegum bæjarins vegna starfa á öðrum vettvangi.
Bæjarstjórn samþykkir lausnarbeiðnina með 11 samhljóða atkvæðum og þakkar Ingibjörgu gott samstarf á liðnum árum.

2.Kosning bæjarráðs til eins árs

Málsnúmer 2018060035Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir verði varafulltrúi í bæjarráði til loka kjörtímabils í stað Ingibjargar Ólafar Isaksen.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Kosning nefnda 2018-2022 - varaskrifari bæjarstjórnar

Málsnúmer 2018060032Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir verði varaskrifari bæjarstjórnar til loka kjörtímabils í stað Ingibjargar Ólafar Isaksen.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - kjarasamninganefnd

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga B-lista um breytingu á skipan varafulltrúa í kjarasamninganefnd:

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir verði varafulltrúi í stað Ingibjargar Ólafar Isaksen.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - velferðarráð

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga B-lista um breytingu á skipan varafulltrúa í velferðarráði:

Áslaug Magnúsdóttir verði varafulltrúi í stað Ingerar Rósar Ólafsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - fræðsluráð

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um breytingu á skipan fræðsluráðs:

Þorlákur Axel Jónsson verði formaður í stað Ingibjargar Ólafar Isaksen.

Siguróli Magni Sigurðsson verði aðalfulltrúi í stað Ingibjargar Ólafar Isaksen og jafnframt varaformaður ráðsins.

Gunnar Már Gunnarsson verði varafulltrúi í stað Siguróla Magna Sigurðssonar.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

7.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - umhverfis- og mannvirkjaráð

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga B-lista um breytingu á skipan fulltrúa í umhverfis- og mannvirkjaráði:

Sunna Hlín Jóhannesdóttir verði aðalfulltrúi í stað Gunnfríðar Elínar Hreiðarsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

8.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um skipan varafulltrúa í svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar:

Sóley Björk Stefánsdóttir verði varafulltrúi í stað Ingibjargar Ólafar Isaksen.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

9.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - ársþing SSNE

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um breytingu á skipan fulltrúa á ársþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra.

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir verði aðalfulltrúi í stað Ingibjargar Ólafar Isaksen.

Tryggvi Már Ingvarsson verði varafulltrúi í stað Gunnfríðar Elínar Hreiðarsdóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

10.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 - landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingu á skipan varafulltrúa á landsþingum Sambands íslenskra sveitarfélaga:

Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir verði varafulltrúi í Ingibjargar Ólafar Isaksen.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

11.Hverfisráð Hríseyjar og Grímseyjar - endurskoðun samþykktar fyrir ráðin

Málsnúmer 2020020668Vakta málsnúmer

Liður 6 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 23. september 2021:

Lögð fyrir að nýju drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir hverfisráð Hríseyjar og Grímseyjar. Drögin voru lögð fyrir bæjarráð 4. mars sl. og í framhaldinu send til umsagnar hverfisráðanna. Engar athugasemdir bárust.

Bæjarráð staðfestir með fimm samhljóða atkvæðum fyrirliggjandi tillögur og vísar til bæjarstjórnar til samþykktar.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti efni breytinganna.
Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaða samþykkt fyrir hverfisráð Hríseyjar og Grímseyjar með 11 samhljóða atkvæðum.

12.Reglur Akureyrarbæjar um úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárin 2020-2021 og 2021-2022

Málsnúmer 2020100143Vakta málsnúmer

Liður 3 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 22. september 2021:

Lögð fram drög að breytingum á reglum um sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki.

Halldóra Kristín Hauksdóttir lögfræðingur velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.

Velferðarráð samþykkir breytingarnar og vísar þeim til bæjarstjórnar.

Heimir Haraldsson kynnti efni breytinganna.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum framlagðar breytingar á reglum Akureyrarbæjar um úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja fyrir börn á tekjulágum heimilum.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 23. og 29. september 2021
Bæjarráð 23. og 30. september 2021
Fræðsluráð 20. september 2021
Skipulagsráð 29. september 2021
Umhverfis- og mannvirkjaráð 24. september 2021
Velferðarráð 22. september 2021

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 16:08.