Bæjarstjórn

3497. fundur 07. september 2021 kl. 16:00 - 18:23 Hamrar í Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Andri Teitsson
  • Hlynur Jóhannsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Gunnar Gíslason
  • Heimir Haraldsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Í upphafi fundar leitaði forseti afbrigða til að taka á dagskrá skýrslu bæjarstjóra sem verði 4. liður á dagskrá. Var það samþykkt.

1.Samþykkt um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar - breytingar 2021

Málsnúmer 2021080626Vakta málsnúmer

Liður 3 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 19. ágúst 2021:

Lögð fram tillaga að breytingu á 14. grein bæjarmálasamþykktar. Greinin fjallar um notkun fjarfundarbúnaðar á fundum bæjarstjórnar, ráða og nefnda bæjarins.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð hefur heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í júlí og ágúst 2021 sbr. bókun í 9. lið fundargerðar bæjarstjórnar 15. júní sl.

Bæjarráð vísar tillögunni til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti efni tillögunnar.
Bæjarstjórn samþykkir, með 11 samhljóða atkvæðum, framlagða tillögu um breytingar á 14. grein og felur bæjarlögmanni að senda hana til staðfestingar ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála.

2.Íþróttastefna

Málsnúmer 2017020033Vakta málsnúmer

Rætt um íþróttastefnu Akureyrarbæjar.

Málshefjandi var Sóley Björk Stefánsdóttir og ræddi m.a. þörf á endurskoðun stefnunnar.

Í umræðum tóku til máls Eva Hrund Einarsdóttir, Andri Teitsson, Gunnar Gíslason, Heimir Haraldsson, Hlynur Jóhannsson, Ingibjörg Ólöf Isaksen, Halla Björk Reynisdóttir, Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Sóley Björk Stefánsdóttir.
Bæjarstjórn ákveður að halda umræðum áfram á næsta fundi.

3.Skýrsla Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar

Málsnúmer 2021090143Vakta málsnúmer

Rætt um nýútkomna skýrslu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.

Útdrátt úr skýrslunni er meðal annars að finna á vef Veðurstofu Íslands: https://www.vedur.is/um-vi/frettir/afdrattarlaus-skyrsla-sameinudu-thjodanna-um-loftslagsbreytingar

Málshefjandi var Sóley Björk Stefánsdóttir.

Í umræðum tóku til máls Andri Teitsson, Hilda Jana Gísladóttir, Halla Björk Reynisdóttir, Þórhallur Jónsson, Guðmundur Baldvin Guðmundsson, Heimir Haraldsson og Ingibjörg Ólöf Isaksen.
Akureyri hefur verið framarlega í flokki varðandi umhverfis- og loftslagsmál svo sem með flokkun á sorpi, vinnslu á metani, lífdísil og moltu og með kaupum á hreinorku-bílum og fleira. Bæjarstjórn Akureyrarbæjar gerir sér þó grein fyrir að áríðandi er að grípa til enn frekari aðgerða vegna loftslagsbreytinga og einsetur sér að taka málin föstum tökum. Samþykkt verður ný aðgerðabundin loftslagsstefna fyrir árslok sem fylgt verður fast eftir á komandi mánuðum og árum.

4.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2021010534Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 16. og 24. júní, 1., 8., 15. , 22. og 29. júlí, 5., 12., 19. og 26. ágúst og 2. september 2021
Bæjarráð 24. júní, 1. og 15. júlí, 12, 19. og 26. ágúst og 2. september 2021
Frístundaráð 23. júní, 18. ágúst og 1. september 2021
Fræðsluráð 9. og 23. ágúst 2021
Kjarasamninganefnd 12. júlí 2021
Skipulagsráð 23. júní, 7. júlí, 11. og 25. ágúst 2021
Stjórn Akureyrarstofu 24. júní,19. ágúst og 2. september 2021
Umhverfis- og mannvirkjaráð 11. og 25. júní og 27. ágúst 2021
Velferðarráð 16. júní og 18. ágúst 2021


Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 18:23.