Bæjarráð

3460. fundur 28. maí 2015 kl. 08:30 - 11:40 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Eva Hrund Einarsdóttir D-lista mætti í forföllum Gunnars Gíslasonar.
Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista boðaði forföll sín og varamanns.

1.Félagsdómur - SLFÍ og SNS

Málsnúmer 2015010253Vakta málsnúmer

Lagður fram dómur Félagsdóms nr. 1/2015 dagsettur 21. maí 2015. Sjúkraliðafélag Íslands gegn Akureyrarbæ.
Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar sat fund bæjarráðs undir þessum lið ásamt Helgu Erlingsdóttur hjúkrunarforstjóra ÖA, Heiðrúnu Björgvinsdóttur rekstrarstjóra ÖA og Sigríði Huld Jónsdóttur formanni velferðarráðs, sem sat fundinn að hluta undir þessum lið.
Einnig sat Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri fundinn undir þessum lið.

2.Rekstur - staða mála - Öldrunarheimili Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2015040014Vakta málsnúmer

Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar sat fund bæjarráðs undir þessum lið og fór yfir rekstrarstöðu og horfur í málaflokknum.
Einnig sátu Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA og Heiðrún Björgvinsdóttir rekstrarstjóri ÖA fundinn undir þessum lið ásamt Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra.

3.Staða og framtíð framhaldsskóla á starfssvæði Eyþings

Málsnúmer 2015050102Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. maí 2015 frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu er varðar stöðu og framtíð framhaldsskóla á starfssvæði Eyþings.
Hjalti Jón Sveinsson skólameistari VMA og Jón Már Héðinsson skólameistari MA mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerð

Málsnúmer 2014100184Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 21. maí 2015.
Bæjarráð vísar 2., 11., 19. og 20. lið til skipulagsdeildar, 3., 4., 8., 9., 10., 12., 13., 16., 17., 22. og 24. lið til framkvæmdadeildar, 14., 15., 18. og 25. lið til bæjarstjóra, 23. lið til fræðslustjóra, 1., 5., 6., 7., 21. og 26. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

Fundi slitið - kl. 11:40.