Bæjarráð

3443. fundur 08. janúar 2015 kl. 09:00 - 11:48 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson varaformaður
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Afskriftir lána 2014

Málsnúmer 2014120067Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð félagsmálaráðs dagsett 17. desember 2014:
Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar lagði fram áætlun um afskriftir lána 2014.
Félagsmálaráð samþykkir áætlunina og vísar málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir framlagða áætlun um afskriftir lána 2014.

2.Sjúkratryggingar Íslands - sjúkraflutningar

Málsnúmer 2014050035Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir stöðu mála.
Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

3.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2014

Málsnúmer 2014010020Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 823. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 12. desember 2014. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx

4.Hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis - fundargerðir 2014

Málsnúmer 2014010038Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 80. fundargerð hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dagsett 2. og 9. desember 2014. Fundargerðina má finna á netslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/holta-og-hlidahverfi/fundargerdir-2014-2015

5.Greið leið ehf - aukafundur 2015

Málsnúmer 2015010048Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 5. janúar 2015 til hluthafa í Greiðri leið ehf þar sem boðað er til aukafundar mánudaginn 12. janúar nk. að Hafnarstræti 91, 3. hæð, kl. 11:00.
Bæjarráð felur formanni bæjarráðs að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

Fundi slitið - kl. 11:48.