Bæjarráð

3426. fundur 04. september 2014 kl. 09:00 - 12:20 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Rekstur - staða mála - embættismenn

Málsnúmer 2014090001Vakta málsnúmer

Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri mætti á fund bæjarráðs og fór yfir rekstrarstöðu og horfur í málaflokknum.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat einnig fundinn undir þessum lið.

2.Menningarfélag Akureyrar - styrkbeiðni

Málsnúmer 2014090004Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. ágúst 2014 frá stjórn Menningarfélags Akureyrar þar sem óskað er eftir 5.900.000 kr. framlagi til félagsins svo hægt sé að klára undirbúning við stofnun og rekstur Menningarfélags Akureyrar um næstu áramót.

Bæjarráð samþykkir framlag til Menningarfélags Akureyrar að upphæð kr. 5.900.000.

3.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017

Málsnúmer 2013050198Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017 vegna fjárveitinga til búsetudeildar vegna brýnna þarfa þriggja einstaklinga fyrir húsnæði og sérhæfða þjónustu og vegna rekstrarsamnings um rekstur Lautarinnar sem samþykkt voru í bæjarráði 28. ágúst sl.

Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

4.Samiðn - ósk um aðild Akureyrarbæjar að kjarasamningi Samiðnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2014060001Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 3. júlí sl.
Erindi dagsett 26. maí 2014 frá framkvæmdastjóra Samiðnar þar sem fram kemur ósk um aðild Akureyrarbæjar að kjarasamningi Samiðnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.

5.Samþykkt fyrir kjarasamninganefnd Akureyrar endurskoðun 2014

Málsnúmer 2014080112Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dagsett 26. ágúst 2014:
Lögð fram til umsagnar tillaga að breytingum á samþykkt fyrir kjarasamninganefnd Akureyrar.
Kjarasamninganefnd samþykkir framlagða tillögu fyrir sitt leyti.

Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingum á samþykkt fyrir kjarasamningnefnd Akureyrar og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 12:20.