Bæjarráð

3425. fundur 28. ágúst 2014 kl. 09:00 - 11:47 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Eva Hrund Einarsdóttir D-lista mætti í forföllum Gunnars Gíslasonar.

1.Búsetudeild - einstaklingsmál 2014

Málsnúmer 2014020048Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir aukafjárveitingu að upphæð kr. 9.600.000 vegna brýnna þarfa þriggja einstaklinga fyrir húsnæði og sérhæfða þjónustu.

2.Dagvist aldraðra - taka til skoðunar og umfjöllunar núverandi skipulag og húsnæði dagþjónustunnar sem rekin er á tveimur stöðum

Málsnúmer 2013040039Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð félagsmálaráðs dagsett 20. ágúst 2014:
Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, ásamt forstöðumanni dagþjónustu aldraðra í Víðilundi lögðu fram minnisblað dagsett 18. ágúst 2014 með tillögu um að stjórn dagþjónustu aldraðra á Akureyri verði öll færð undir stjórn Öldrunarheimila Akureyrar.
Félagsmálaráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarráð að stjórn dagþjónustu aldraðra á Akureyri verði öll færð undir stjórn Öldrunarheimila Akureyrar.
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir að stjórn dagþjónustu aldraðra á Akureyri verði öll færð undir stjórn Öldrunarheimila Akureyrar.

3.Lautin - athvarf fyrir fólk með geðraskanir

Málsnúmer 2012010115Vakta málsnúmer

9. liður í fundargerð félagsmálaráðs dagsett 20. ágúst 2014:
Rekstrarsamningur um rekstur Lautar, athvarfs fyrir fólk með geðraskanir, rennur út 31. ágúst 2014. Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti málið og óskar heimildar félagsmálaráðs til að framlengja samninginn til 31. desember 2014.
Félagsmálaráð óskar eftir heimild bæjarráðs fyrir aukafjárveitingu að upphæð kr. 3.707.760 þannig að hægt verði að tryggja rekstur Lautarinnar út rekstrarárið. Að fengnu samþykki bæjarráðs hefur framkvæmdastjóri búsetudeildar heimild til að framlengja samninginn til 31. desember 2014. Félagsmálaráð telur brýnt að lausn verði fundin á rekstri Lautarinnar til framtíðar og felur formanni félagsmálaráðs og framkvæmdastjóra búsetudeildar að vinna málið áfram.
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir aukafjárveitingu að upphæð kr. 3.707.760 til málaflokksins og tekur undir með félagsmálaráði að brýnt er að finna lausn á rekstri Lautarinnar til framtíðar.

4.Norðurorka 2014 - staða og horfur

Málsnúmer 2014080098Vakta málsnúmer

Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku og Sigurður J. Sigurðsson sviðsstjóri þjónustu- og fjármálasviðs Norðurorku mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið og kynntu stöðu og horfur í rekstri fyrirtækisins.

Bæjarráð þakkar Helga og Sigurði kynninguna.

5.Erfðafestuland - nr. 508

Málsnúmer 2014080119Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 8. maí 2014 frá Magnúsi Rúnari Árnasyni fyrir hönd Árna Magnússonar vegna fyrirhugaðar sölu á erfðafestulandi nr. 508 og forkaupsréttar Akureyrarbæjar á landinu.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð felur bæjarlögmanni að fá óvilhallan matsmann til að meta erfðafestuland nr. 508.

6.VMA, Hringteigur 2 - deiliskipulag

Málsnúmer 2012121230Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 20. ágúst 2014:
Skipulagstillagan var auglýst frá 25. júní með athugasemdafresti til 6. ágúst 2014. Auglýsingar birtust í Lögbirtingablaði og Dagskránni. Skipulagsgögn voru aðgengileg í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og á heimasíðu skipulagsdeildar.
Umsögn Norðurorku barst 13. ágúst 2014 og eru engar athugasemdir gerðar.
Engin athugasemd barst.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 3. lið fundargerðar bæjarstjórnar 1. júlí 2014.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar.

7.Viðmið og vinnureglur íþróttaráðs vegna styrkja og viðurkenninga

Málsnúmer 2014080083Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð íþróttaráðs dagsett 21. ágúst 2014:
Umræður og kynning á viðmiðum og vinnureglum íþróttaráðs vegna styrkja og viðurkenninga.
Íþróttaráð vísar viðmiðum og vinnureglum sínum til bæjarráðs til kynningar.

8.Bæjarráð - fundaáætlun

Málsnúmer 2014080093Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fundaáætlun bæjarráðs fyrir tímabilið september til desember 2014.
Bæjarráð samþykkir fundaáætlunina.

Fundi slitið - kl. 11:47.