Bæjarráð

3400. fundur 06. febrúar 2014 kl. 09:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Logi Már Einarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista mætti í forföllum Geirs Kristins Aðalsteinssonar.
Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti í forföllum Sigurðar Guðmundssonar.

1.Kynjasamþætting og kynjuð fjárhagsáætlunargerð - tilraunaverkefni 2012-2013

Málsnúmer 2011100052Vakta málsnúmer

Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti tilraunaverkefni sem unnið var á árunum 2012-2013 um kynjasamþættingu og kynjaða fjárhagsáætlunargerð.

Bæjarráð þakkar Katrínu Björgu fyrir kynninguna.

2.Eyþing - fundargerðir

Málsnúmer 2010110064Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 250. fundar stjórnar Eyþings dags. 11. desember 2013.
Fundargerðina má finna á slóðinni: https://www.eything.is/is/fundargerdir-1
Einnig lögð fram til kynningar 1. fundargerð Fulltrúaráðs Eyþings dags. 11. desember 2013.

3.Hverfisnefnd Naustahverfis - fundargerðir 2014

Málsnúmer 2014010033Vakta málsnúmer

Lögð fram 55. fundargerð hverfisnefndar Naustahverfis dags. 13. janúar 2014. Fundargerðin er í 3 liðum.
Fundargerðina má finna á netslóðinni:
https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/naustahverfi/fundargerdir-naustahverfi

Bæjarráð vísar 2. lið til framkvæmdadeildar, 1. og 3. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

4.Samvinnufélög/húsnæðissamvinnufélög - Búseti á Norðurlandi

Málsnúmer 2014010356Vakta málsnúmer

Erindi dags. 28. janúar 2014 frá framkvæmdastjóra Búseta á Norðurlandi þar sem óskað er eftir fundi með fulltrúum Akureyrarbæjar til að ræða húsnæðismál.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða fulltrúa Búseta á Norðurlandi á næsta fund bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 11:00.