Bæjarráð

3398. fundur 23. janúar 2014 kl. 09:00 - 09:26 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Ragnar Sverrisson
  • Sigurður Guðmundsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Álagning gjalda árið 2014 - fasteignaskattur - reglur um afslátt af fasteignaskatti

Málsnúmer 2014010218Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að reglum um afslátt elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti 2014.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

2.Hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis - fundargerð

Málsnúmer 2014010038Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 70. fundar hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dags. 7. janúar 2014.
Fundargerðina má finna á netslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/holta-og-hlidahverfi/fundargerdir-2014-2015

3.Hverfisráð Grímseyjar - fundargerð

Málsnúmer 2010070098Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 18. fundar hverfisráðs Grímseyjar dags. 15. nóvember 2013.
Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/grimsey/fundargerdir

Bæjarráð vísar 5., 7., 8. og 10. lið til framkvæmdadeildar og 6. lið til Hafnasamlags Norðurlands.

Aðrir liðir fundargerðarinnar eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

4.Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar - aðsetur

Málsnúmer 2014010221Vakta málsnúmer

Erindi dags. 10. janúar 2014 frá Bjarna Kristjánssyni formanni Svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar er varðar bókun svæðisskipulagsnefndar þann 9. janúar sl. Í bókuninni kemur fram að Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar telur brýnt að þau sveitarfélög sem aðild eiga að nefndinni finni nefndinni fastan samastað á sameiginlegum starfsvettvangi sveitarfélaganna. Nefndin leggur til að sá vettvangur verði Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar bs og að skrifstofa þess annist ákveðin verkefni sem talin eru upp í erindinu.
Óskað er eftir formlegri afgreiðslu sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir bókun Svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar.

Fundi slitið - kl. 09:26.