Bæjarráð

3354. fundur 28. febrúar 2013 kl. 09:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Ragnar Sverrisson áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Heiða Karlsdóttir ritari bæjarstjóra
Dagskrá
Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista mætti í forföllum Odds Helga Halldórssonar.
Ragnar Sverrisson S-lista mætti í forföllum Loga Más Einarssonar.

1.Lánasjóður sveitarfélaga - aðalfundur 2013

Málsnúmer 2013020211Vakta málsnúmer

Erindi dags. 18. febrúar 2013 frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf þar sem boðað er til aðalfundar föstudaginn 15. mars 2013 kl. 16:00 á Grand hóteli Reykjavík. Vakin er athygli á því að rétt til að sækja aðalfund eiga allir sveitarstjórnarmenn.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

2.Lánasjóður sveitarfélaga - lántaka 2013

Málsnúmer 2013020261Vakta málsnúmer

Fjármálastjóri kynnti fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf að upphæð EUR 977.777.

Bæjarráð samþykkir fyrirhugaða lántöku að upphæð EUR 977.777 og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

3.Frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna, 537. mál

Málsnúmer 2013020250Vakta málsnúmer

Erindi dags. 20. febrúar 2013 frá Sigrúnu Helgu Sigurjónsdóttur f.h. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna, 537. mál 2013. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 28. febrúar nk. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/141/s/0907.html

Bæjarráð tekur jákvætt í frumvarpið en gerir athugasemdir við kynningu þess og tímafrest til að gera athugasemdir við frumvarpið.

Bæjarráð leggur áherslu á að ríkisvaldið taki á sig allan kostnað vegna frekari kynningar á málinu.

Bæjarlögmanni falið að svara erindinu.

4.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2012

Málsnúmer 2012040165Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til desember 2012.

5.Launakönnun 2012 - vinnuhópur

Málsnúmer 2012110023Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 20. febrúar 2013:
Á sameiginlegum fundi bæjarráðs, kjarasamninganefndar og samfélags- og mannréttindaráðs var ákveðið að stofna vinnuhóp sem hefur það hlutverk að greina ástæður þess að munur mælist á launum kynjanna og gera tillögur að úrbótum. Vinnuhópurinn verður skipaður einum fulltrúa úr hverju ráði/nefnd ásamt starfsmannastjóra og jafnréttisráðgjafa.

Bæjarráð tilnefnir Andreu Sigrúnu Hjálmsdóttur V-lista sem aðalmann í vinnuhópinn og Sigurð Guðmundsson A-lista til vara.  Bæjarstjóri starfi með vinnuhópnum.

Fundi slitið - kl. 11:00.