Bæjarráð

3846. fundur 24. apríl 2024 kl. 13:00 - 13:23 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir varaformaður
  • Hlynur Jóhannsson
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Olga Margrét Kristínard. Cilia lögfræðingur ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá

1.Bjarkarlundur 2 - auglýsing lóðar

Málsnúmer 2023010134Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða tilboðs í byggingarrétt lóðarinnar Bjarkarlundur 2.

Þrjú tilboð bárust og var Áskell Viðar Bjarnason með hæsta tilboðið. Til samræmis við ákvæði úthlutunarskilmála er lögð fram yfirlýsing Íslandsbanka sem ber með sér að umsækjandi geti staðið undir kostnaði vegna byggingarframkvæmda og kaupa á byggingarrétti.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð í byggingarrétt lóðarinnar Bjarkarlundur 2.

2.Bæjarstjórnarfundur unga fólksins 2022-2026

Málsnúmer 2023030583Vakta málsnúmer

Lögð fram til umræðu fundargerð bæjarstjórnarfundar unga fólksins dagsett 16. apríl 2024.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með bæjarstjórnarfund unga fólksins sem haldinn var 16. apríl sl. og þakkar ungmennaráði fyrir góðar og gagnlegar umræður.

Bæjarráð samþykkir að vísa liðum 1, 6 og 7, varðandi hlutverk nemendaráða, sálfræðiþjónustu og fræðslumál í grunnskólum, til fræðslu- og lýðheilsuráðs. Jafnframt vísar bæjarráð liðum 3, 10 og 13, varðandi ruslamál, viðhald á ljósastaurum og gangbrautum og LED-væðingu, til umhverfis- og mannvirkjaráðs. Þá tekur bæjarráð undir mikilvægi þess að kynna betur tómstundaframboð og frístundastyrk í samræmi við lið 11 í fundargerðinni og felur sviðsstjóra þjónustu- og skipulagssviðs og sviðsstjóra fræðslu- og lýðheilsusviðs að vinna málið áfram.

3.Landskerfi bókasafna hf. - aðalfundur

Málsnúmer 2022030931Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. apríl 2024 frá Sveinbjörgu Sveinsdóttur framkvæmdastjóra f.h. stjórnar Landskerfis bókasafna hf. þar sem boðað er til aðalfundar félagsins þriðjudaginn 7. maí nk. kl. 11:00 í húsakynnum félagsins að Katrínartúni 4 í Reykjavík.
Bæjarráð felur Árna Konráði Bjarnasyni rekstrarstjóra fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

4.Tillaga til þingsályktunar um um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku á Íslandi, 899. mál

Málsnúmer 2024040979Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 19. apríl 2024 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku á Íslandi, 899. mál 2024.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 3. maí nk. í gegnum umsagnagátt Alþingis: umsagnir.althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/154/s/1338.html

5.Frumvarp til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun (virkjunarkostir í vindorku), 900. mál

Málsnúmer 2024040978Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 19. apríl 2024 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011 (virkjunarkostir í vindorku), 900. mál 2024.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 3. maí nk. í gegnum umsagnagátt Alþingis: umsagnir.althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/154/s/1339.html

Fundi slitið - kl. 13:23.