Bæjarráð

3762. fundur 10. mars 2022 kl. 08:15 - 08:45 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Gunnar Gíslason
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Hlynur Jóhannsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá

1.UMSA - viðaukar 2022

Málsnúmer 2022021085Vakta málsnúmer

Liður 8 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs 22. febrúar 2022:

Lagt fram minnisblað dagsett 24. febrúar 2022 varðandi færslu á áætlun ræktunarstöðvar frá umhverfismiðstöð yfir til umhverfisdeildar. Ræktunarstöðin verði rekin þar samhliða Lystigarðinum.

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að óska eftir viðauka til bæjarráðs þess efnis að færa áætlunina milli kostnaðarstöðva.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hag- og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir beiðni umhverfis- og mannvirkjaráðs með fimm samhljóða atkvæðum.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2022 - viðauki

Málsnúmer 2021030524Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 1.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hag- og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir viðauka 1 með fimm samhljóða atkvæðum og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

3.Norðurorka hf. - aðalfundur 2022

Málsnúmer 2022030122Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. mars 2022 frá stjórn Norðurorku hf. þar sem boðað er til aðalfundar félagsins 31. mars kl. 13:00 í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri.
Bæjarráð felur Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

4.Samband íslenskra sveitarfélaga - þátttaka í verkefninu Samtaka um hringrásarhagkerfi

Málsnúmer 2022030052Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. mars 2022 frá Eygerði Margrétardóttur f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem Akureyrarbæ er boðið að taka þátt í upphafsfundi verkefnisins "Samtaka um hringrásarhagkerfið" 16. mars nk. kl. 10:00-12:00.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skrá Akureyrarbæ til þátttöku í samráði við umhverfis- og mannvirkjasvið.

5.Öldungaráð - fundargerðir lagðar fyrir bæjarráð

Málsnúmer 2022030252Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 19. fundar öldungaráðs dagsett 23. febrúar 2022.

6.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2022

Málsnúmer 2022010393Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 907. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 28. febrúar 2022.

7.Tillaga til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum, 51. mál

Málsnúmer 2022030145Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 2. mars 2022 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum, 51. mál.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 16. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

8.Frumvarp til laga um almannatryggingar (skerðing á lífeyri vegna búsetu), 71. mál

Málsnúmer 2022030018Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. febrúar 2022 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um almannatryggingar (skerðing á lífeyri vegna búsetu), 71. mál 2022.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 14. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/pdf/152/s/0071.pdf

9.Frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldastofn fasteignaskatts), 78. mál

Málsnúmer 2022030254Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 7. mars 2022 frá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldastofn fasteignaskatts), 78. mál 2022.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 21. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/pdf/152/s/0078.pdf

10.Drög að frumvarpi til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 í Samráðsgátt

Málsnúmer 2022030259Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að frumvarpi til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 (íbúakosningar á vegum sveitarfélaga) sem hafa verið birt í Samráðsgátt. Innviðaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drögin eigi síðar en 15. mars 2022.

Drögin má finna á slóðinni: https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3166

Fundi slitið - kl. 08:45.