Bæjarráð

3647. fundur 01. ágúst 2019 kl. 08:15 - 10:05 Fundaaðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Hlynur Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Sameining Eyþings og Atvinnuþróunarfélaganna á Norðurlandi eystra

Málsnúmer 2017060123Vakta málsnúmer

Rætt um vinnu við tillögu að sameiningu Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna.

Katrín Sigurjónsdóttir stjórnarformaður Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið og Elías Pétursson stjórnarformaður Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga var með á fundinum í gegnum síma. Einnig mættu Guðrún Ragnarsdóttir og Helga Hlín Hákonardóttir ráðgjafar hjá Strategíu sem vinna að tillögu til sameiningar.
Bæjarráð þakkar gestunum fyrir komuna á fundinn.

2.Akureyrarflugvöllur

Málsnúmer 2018010214Vakta málsnúmer

Rætt um stöðu Akureyrarflugvallar og framtíðaráform.

Sveinbjörn Indriðason forstjóri ISAVIA mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar Sveinbirni fyrir komuna á fundinn.

3.Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2018-2022 - frístundaráð

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga L-lista um breytingu á skipan fulltrúa í frístundaráði:

Anna Hildur Guðmundsdóttir verði aðalfulltrúi og formaður í stað Hildar Bettyjar Kristjánsdóttur.
Bæjarráð hefur heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 10. lið fundargerðar bæjarstjórnar 18. júní sl.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með 5 samhljóða atkvæðum.

4.Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2018-2022 - stjórn Akureyrarstofu

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga L-lista um breytingar á skipan fulltrúa í stjórn Akureyrarstofu:

Anna Fanney Stefánsdóttir verði aðalfulltrúi í stað Önnu Hildar Guðmundsdóttur. Sigríður Ólafsdóttir verði varafulltrúi í stað Önnu Fanneyjar Stefánsdóttur.
Bæjarráð hefur heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 10. lið fundargerðar bæjarstjórnar 18. júní sl.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með 5 samhljóða atkvæðum.

5.Hverfisráð Hríseyjar - fundargerðir

Málsnúmer 2010020035Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 128. fundar hverfisráðs Hríseyjar dagsett 16. júlí 2019.

Fundargerðina má finna á eftirfarandi netslóð: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 10:05.