Bæjarráð

3584. fundur 25. janúar 2018 kl. 08:30 - 12:15 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Preben Jón Pétursson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Dagbjört Elín Pálsdóttir S-lista mætti í forföllum Sigríðar Huldar Jónsdóttur.

1.Akureyrarflugvöllur

Málsnúmer 2018010214Vakta málsnúmer

Fulltrúar Isavia þau Jón Karl Ólafsson framkvæmdastjóri innanlandsflugvallasviðs og Hjördís Þórhallsdóttir umdæmisstjóri á Norðurlandi mættu á fund bæjarráðs til að ræða málefni Akureyrarflugvallar.

Bæjarfulltrúarnir Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista, Baldvin Valdemarsson D-lista og Eva Hrund Einarsdóttir D-lista sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð Akureyrar fagnar uppsetningu ILS búnaðar sem koma á upp við Akureyrarflugvöll í sumar og lýsir yfir vilja Akureyrarbæjar til samstarfs við framkvæmd uppsetningarinnar.

Þá skorar bæjarráð á ISAVIA og stjórnvöld að ráðast þegar í mótun framtíðarsýnar flugvallarins. Mikilvægt er í því sambandi að rekstrarfyrirkomulag og eignarhald flugvallarins verði endurskoðað þannig að hægt sé að móta framtíðarsýn og uppbyggingu vallarins og lýsir bæjarráð yfir vilja Akureyrarbæjar til að koma að þeirri vinnu.

2.Mánaðarskýrsla bæjarráðs um starfsmanna- og launamál 2017

Málsnúmer 2017020065Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar mánaðarskýrsla um stöðugildi, yfirvinnu og fleira fyrir október, nóvember og desember 2017.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

3.Almennar íbúðir - lög nr. 52/2016 - stofnframlag - húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2016060056Vakta málsnúmer

9. liður í fundargerð velferðarráðs dagsett 17. janúar 2018:

Lagt fram minnisblað dagsett 15. janúar 2018 vegna endurskoðunar á húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar þar sem lagt er til að keypt verði sérfræðivinna við endurskoðunina.

Velferðarráð samþykkir tillöguna og vísar málinu áfram til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að keypt verði sérfræðivinna við endurskoðun á húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar fyrir allt að kr. 2,5 milljónir.

4.Beiðni um aukafjárveitingu vegna sér úrræðis í heimaþjónustu

Málsnúmer 2018010213Vakta málsnúmer

11. liður í fundargerð velferðarráðs dagsett 17. janúar 2018:

Lögð fram ósk sviðsstjóra búsetusviðs um 11 m.kr. aukafjárveitingu vegna tímabundins verkefnis í heimaþjónustu. Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi við heimahjúkrun Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. Samstarfssamningur er í vinnslu.

Velferðarráð samþykkir ósk um aukafjárveitingu fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir framlagða ósk um 11 m.kr. aukafjárveitingu vegna tímabundins verkefnis í heimaþjónustu og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að útbúa viðauka vegna þess.

5.Viðtalstímar bæjarfulltrúa fundargerð

Málsnúmer 2017100376Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 18. janúar 2018.
Bæjarráð vísar 1. lið til skipulagsráðs, 2., 4., 6., 7. og 8. lið til umhverfis- og mannvirkjasviðs, 3. og 5. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

Fundi slitið - kl. 12:15.