Bæjarráð

3580. fundur 14. desember 2017 kl. 08:15 - 10:28 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista mætti í forföllum Prebens Jóns Péturssonar.

1.Endurskoðun ársreikninga 2017-2022 úrskurður kærunefndar útboðsmála

Málsnúmer 2017090037Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar úrskurður kærunefndar útboðsmála dagsettur 7. desember 2017 í máli nr. 19/2017. Grant Thornton endurskoðun ehf gegn Akureyrarbæ og Enor ehf.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2017

Málsnúmer 2017040070Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs janúar til og með október 2017.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri vék af fundi kl. 10:13.

3.Ráðningarsamningur bæjarstjóra 2014-2018 - viðauki

Málsnúmer 2014060081Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir að frá júní 2016 hætti laun bæjastjóra að taka mið af almennum úrskurðum kjararáðs ríkisins eins og kveðið er á um í ráðningarsamningi hans og taki í stað þess mið af breytingum á launavísitölu.

Fundi slitið - kl. 10:28.