Bæjarráð

3574. fundur 02. nóvember 2017 kl. 08:15 - 11:37 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Preben Jón Pétursson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018-2021

Málsnúmer 2017040095Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Einnig mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið bæjarfulltrúinn Eva Hrund Einarsdóttir D-lista.

Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018-2021 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri vék af fundi kl. 09:50.

2.Afskriftir krafna 2017

Málsnúmer 2017100415Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga sviðsstjóra fjársýslusviðs dagsett 25. október 2017 um afskriftir krafna.

Kröfurnar eru frá árunum 2014 og eldri árum. Jafnframt er um að ræða yngri kröfur hjá gjaldþrota aðilum og einstaklingum sem fengið hafa greiðsluaðlögun.

Samtals er um 566 kröfur að ræða að fjárhæð 9.411.303 krónur.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra fjársýslusviðs um afskriftir 566 krafna að fjárhæð 9.411.303 krónur.

3.Samkomulag fjármála- og efnahagsráðuneytis og Akureyrarbæjar um skiptingu lífeyrisskuldbindinga vegna öldrunarheimila

Málsnúmer 2017010009Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur milli ríkissjóðs og Akureyrarkaupstaðar um uppgjör lífeyrisskuldbindinga í Lífeyrissjóði starfsmanna Akureyrarbæjar vegna Öldrunarheimila Akureyrarbæjar dagsettur 26. október 2017.

Einnig lagður fram samningur milli ríkissjóðs og Akureyrarkaupstaðar um uppgjör lífeyrisskuldbindinga í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga vegna hjúkrunarheimilis sveitarfélags dagsettur 26. október 2017.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjármálasviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð staðfestir samningana.

4.Íþróttabandalag Akureyrar - samskipta- og samstarfssamningur Akureyrarbæjar og ÍBA

Málsnúmer 2015010126Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð frístundaráðs dagsett 26. október 2017:

Framhald frá síðasta fundi. Fullmótaður samningur lagður fram til samþykktar.

Ellert Örn Erlingsson deildarstjóri íþróttamála kynnti samninginn.

Frístundaráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og lýsir yfir mikilli ánægju með hann.

Frístundaráð vísar samningnum til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjármálasviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista sat hjá við afgreiðslu.

5.Eyþing - aðalfundur 2017

Málsnúmer 2017100477Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar dagskrá aðalfundar Eyþings sem haldinn verður á Siglóhóteli, Siglufirði dagana 10. og 11. nóvember nk.

Farið yfir lista yfir aðal- og varafulltrúa á aðalfund Eyþing.

Fundi slitið - kl. 11:37.