Atvinnumálanefnd

7. fundur 11. ágúst 2015 kl. 16:00 - 17:30 Fundarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Matthías Rögnvaldsson formaður
  • Erla Björg Guðmundsdóttir
  • Jóhann Jónsson
  • Elías Gunnar Þorbjörnsson
  • Margrét Kristín Helgadóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Albertína Friðbjörg Elíasdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Jafnréttisstefna 2015-2019

Málsnúmer 2015060217Vakta málsnúmer

Samfélags- og mannréttindaráð hefur unnið að endurskoðun jafnréttisstefnu bæjarins og óskaði eftir umsögn atvinnumálanefndar.
Atvinnumálanefnd frestar umsögn til næsta fundar.

2.Hverfisráð Hríseyjar - fundargerðir 2010-2015

Málsnúmer 2010020035Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá 93. fundi hverfisráðs Hríseyjar, sem vísað var til atvinnumálanefndar frá bæjarráði á fundi 23. júlí 2015. Í bókun hverfisráðsins er velt upp möguleikum á nýtingu húsnæðisins Hlein til atvinnustarfsemi.
Atvinnumálanefnd tekur jákvætt í hugmyndina um aukna nýtingu húsnæðisins en telur eðlilegt að málið verði skoðað af nýjum verkefnastjóra um Brothættar byggðir þegar hann tekur til starfa.

3.Brothættar byggðir - starfslýsing og auglýsing eftir starfsmanni

Málsnúmer 2015070054Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að starfslýsingu og auglýsingu eftir starfsmanni til að vinna að verkefninu Brothættum byggðum í Hrísey og Grímsey.
Atvinnumálanefnd samþykkir drög að starfslýsingu og auglýsingu fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarráð að starfið verði auglýst sem fyrst.

Fundi slitið - kl. 17:30.