Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

888. fundur 03. nóvember 2022 kl. 13:00 - 13:50 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Glerárgata 28 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss

Málsnúmer 2022100694Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. október 2022 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Þulu ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á 2. hæð í húsi nr. 28 við Glerárgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Hulduholt 27 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022100720Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. október 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Sverris Bergssonar sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 27 við Hulduholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Suðurbyggð 12 - umsókn um byggingarheimild fyrir breytingum utanhúss

Málsnúmer 2022101073Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. október 2022 þar sem Bjarni Reykjalín fyrir hönd Heiðars Þórs Rúnarssonar sækir um byggingarheimild fyrir gluggabreytingum á húsi nr. 12 við Suðurbyggð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Bjarna Reykjalín.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Goðanes 18 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022070593Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. júlí 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson f.h. Akurbergs ehf., sækir um byggingarleyfi fyrir geymsluhúsnæði á lóð nr. 18 við Goðanes. Innkomnar nýjar teikningar 23. október 2022.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Týsnes 2A og 2B - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022031211Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. mars 2022 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Þríforks ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir tveimur byggingum á lóð nr. 2 við Týsnes.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

6.Dalsbraut, Lundarskóli, B-álma - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi

Málsnúmer 2021023260Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. október 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á húsi Lundarskóla við Dalsbraut.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:50.