Dalsbraut, Lundarskóli, B-álma - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi

Málsnúmer 2021023260

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 807. fundur - 25.03.2021

Erindi dagsett 24. febrúar 2021 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi Lundarskóla við Dalsbraut. Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi í B-álmu ásamt breytingum á gluggum og inngarði. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 809. fundur - 08.04.2021

Erindi dagsett 24. febrúar 2021 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi Lundarskóla við Dalsbraut. Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi í B-álmu ásamt breytingum á gluggum og inngarði. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 888. fundur - 03.11.2022

Erindi dagsett 27. október 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á húsi Lundarskóla við Dalsbraut.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.