Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

695. fundur 18. október 2018 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Víðimýri 3 - umsókn um byggingarleyfi fyrir kvisti og breytingu á gluggum

Málsnúmer 2018040124Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. apríl 2018 þar sem Jónas Vigfússon fyrir hönd Hrafnkels Reynissonar og Lilju K. Bjarnadóttur sækir um byggingarleyfi fyrir kvisti og breytingu á gluggum á húsi nr. 3 við Víðimýri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jónas Vigfússon. Innkomnar nýjar teikningar 8. október 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Kristjánshagi 4 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2018080136Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. ágúst 2018 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Tréverks ehf., kt. 660269-2829, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 4 við Kristjánshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 18. október 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Óseyri 33 - umsókn um byggingarleyfi fyrir hreinsistöð

Málsnúmer 2017020126Vakta málsnúmer

Mótteknar teikningar 9. október 2018 þar sem Gísli Kristinsson fyrir hönd Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hreinsistöð á lóð nr. 33 við Óseyri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson.
Byggingafulltrúi samþykkir erindið.

4.Kristjánshagi 8A - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2018090101Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. september 2018 þar sem Þröstur Sigurðsson fyrir hönd Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 8A við Kristjánshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar nýjar teikningar 9. október 2018. Jafnframt er óskað eftir heimild til jarðvegsskipta á grundvelli innlagðra teikninga.
Byggingarfulltrúi heimilar jarðvegsskipti en frestar afgreiðslu að öðru leyti með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Kristjánshagi 8B - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2018090096Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. september 2018 þar sem Þröstur Sigurðsson fyrir hönd Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 8B við Kristjánshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar nýjar teikningar 9. október 2018. Jafnframt er óskað eftir heimild til jarðvegsskipta á grundvelli innlagðra teikninga.
Byggingarfulltrúi heimilar jarðvegsskipti en frestar afgreiðslu að öðru leyti með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 14:00.