Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

645. fundur 07. september 2017 kl. 13:00 - 13:15 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri skipulagssviðs
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Undirhlíð 1 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2015120128Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. ágúst 2017 þar sem Logi Már Einarsson fyrir hönd SS Byggis ehf. sækir um breytingar á brunahönnun bílgeymslukjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 1 við Undirhlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson og uppfærð brunahönnun.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Ráðhústorg 3 - breytingar á 1. hæð

Málsnúmer 2017080011Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. ágúst 2017 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Natten ehf. sækir um breytingar innanhúss á 1. hæð húss nr. 3 við Ráðhústorg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 4. september 2017.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu þar til umbeðin fylgigögn berast.

3.Óseyri 33 - umsókn um byggingarleyfi fyrir hreinsistöð

Málsnúmer 2017020126Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. febrúar 2017 þar sem Gísli Kristinsson fyrir hönd Norðurorku hf. sækir um byggingarleyfi fyrir hreinsistöð á lóð nr. 33 við Óseyri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson. Innkomnar nýjar teikningar 30. ágúst 2017.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Strandgata 29, byggingaleyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2017080009Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. ágúst 2017 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Vesturkants ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breytingum innandyra í húsi nr. 29 við Strandgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 29. ágúst 2017.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:15.