Vorsýning félagsmiðstöðva fólksins 25. og 26. maí

Nokkur dæmi um fallegt handverk eftir notendur félagsmiðstöðva fólksins
Nokkur dæmi um fallegt handverk eftir notendur félagsmiðstöðva fólksins

Félagsmiðstöðvar fólksins bjóða til vorsýningar í Sölku, Víðilundi 22

Opið verður fimmtudag og föstudag 25. og 26. maí  frá kl. 10.00 til 15.00 báða dagana.

Vorsýningin verður tveggja daga veisla þar sem listir og handverk munu flæða um allt og ljúffengt kruðerí bíður eftir að bragðað verði á því.

Samfélagsverkefni annarinnar verður afhent til barnadeildar SAK og Áslaug okkar allra verður með glæsilega kjólasýningu.

Lítið við og sjáið brot af afrakstri skapandi vetrarstarfs miðstöðvanna. Hver veit nema þið fáið innblástur fyrir næsta vetur!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan