Um skólahald á Akureyri

Útilistaverkið Auðhumla og mjaltastúlkan eftir Ragnar Kjartansson sem stendur við Mjólkursamsöluna á…
Útilistaverkið Auðhumla og mjaltastúlkan eftir Ragnar Kjartansson sem stendur við Mjólkursamsöluna á Akureyri. Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Um helgina greindist foreldri barns á leikskólanum Hólmasól með Covid-19 smit. Til að gæta fyllsta öryggis hefur verið ákveðið að ráði sóttvarnalæknis og rakningateymis Almannavarna, að loka tveimur deildum leikskólans í tvær vikur.

Börn og starfsfólk á deildunum tveimur, verða í sóttkví til 27. mars. Rétt er að ítreka að hér er fyrst og fremst um varúðarráðstöfun að ræða til að sporna gegn frekari smitum en aðrir úr fjölskyldu umrædds foreldris, öll börn og starfsfólk á Hólmasól, eru eftir því sem næst verður komist einkennalaus. Með því að grípa til réttra aðgerða verður vonandi hægt að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu sjúkdómsins.

Fræðslustjóri hefur fundað með öllum skólastjórnendum leik- og grunnskóla bæjarins þar sem gerðar voru áætlanir um skólastarf á næstu vikum. Skólastjórar funduðu því næst með starfsfólki sínu í dag, mánudag, og var mikill samhugur í fólki um að standa þétt saman, gæta fyllstu varúðar og stuðla, eftir því sem kostur er, að uppbyggilegu skólastarfi næstu vikurnar. Í ljósi þess að skólastarf verður með mismunandi hætti milli skóla eru foreldrar beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu á heimasíðum skólanna auk þess sem allir foreldrar munu fá nánari upplýsingar í tölvupósti í dag, mánudag.

Ljóst er að í öllu starfi leik- og grunnskóla verður lögð áhersla á að kenna börnum í aðskildum hópum og koma í veg fyrir blöndun. Vegna þessa raskast skólastarf í leikskólum og getur opnunartími breyst. 

Öll sundkennsla og hefðbundin kennsla í list- og verkgreinastofum í grunnskólum fellur niður í samkomubanninu og verður íþróttakennsla í formi hreyfingar á skólalóð, inni í stofum eða með útikennslu. Frístund verður opin í framhaldi af skóladegi yngstu barna en viðbúið er að starfsemin muni að einhverju leyti skerðast. Hugað verður sérstaklega að þörfum barna með hvers konar sérþarfir auk þess að tryggja þeim foreldrum sem starfa á heilbrigðisstofnunum þjónustu fyrir þeirra börn.

Opin hús og klúbbar á vegum félagsmiðstöðvanna falla niður vikuna 16.-23. mars. Fræðsla og val á þeirra vegum fellur einnig niður þá viku.

Starfsfólk félagsmiðstöðvanna hyggst nota vikuna til þess að þróa rafrænar og útivistarvænar lausnir til að halda opin hús og hvetja til virkni og gleði meðal barna og ungmenna á Akureyri. Nánari upplýsingar berast í næstu viku. Í Ungmenna-húsinu í Rósenborg hefur verið ákveðið að aflýsa klúbbastarfi og loka aðstöðu sem og æfingarhúsnæði, ennfremur aðgangi að hljóðveri, sal og listarými. Allt hópastarf Virkisins fellur niður þessa vikuna og unnið er að því að koma á lágmarksstarfsemi. Þeir einstaklingar sem þurfa á aðstoð að halda eru velkomnir eftir sem áður en gæta ber fyllstu varúðar og halda hæfilegri fjarlægð í samskiptum.

Líkt og áður hefur verið tilkynnt hefur Akureyrarbær nú þegar gripið til varúðarráðstafana til að vernda viðkvæma hópa samfélagsins, svo sem á Öldrunarheimilum Akureyrar og skjólstæðinga fjölskyldu- og búsetusviðs. Hér er hægt að lesa frétt með helstu upplýsingum. Við þetta er að bæta að Lautin, athvarf fyrir fólk með geðraskanir, verður lokuð frá og með morgundeginum.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, segir að vissulega sé það slæmt að eitt tilfelli hafi verð staðfest í bænum en að það hafi verið viðbúið og enn sem komið er sé bara um eitt tilfelli að ræða. „Við þurfum fyrst og fremst að hlíta fyrirmælum yfirvalda á sviði sóttvarna og almannavarna, treysta sérfræðingum okkar, stunda holla útiveru, forðast það að taka óþarfa áhættu og horfa jákvæð fram á veginn. Bærinn mun senda frá sér tilkynningar um stöðu mála 2-3 sinnum í viku þar sem skýrt verður frá gangi mála," segir Ásthildur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan