Fundur í bæjarstjórn 19. september

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 19. september næstkomandi kl. 16.

Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, og er öllum opinn. Fundinum verður einnig streymt beint á vefnum og er fólk hvatt til að fylgjast með því. Hér er hlekkur á streymið

Á dagskránni er meðal annars umræða um fyrirhugaða sameiningu MA og VMA, árshlutauppgjör Akureyrarbæjar og skipulagsmál. 

Hér er hægt að skoða dagskrá fundarins.

Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur hér á heimasíðunni að honum loknum. Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan