Ert þú með gámakortið í símanum þínum?

Rúmlega 1.500 manns hafa nú nálgast rafrænt klippikort fyrir gámasvæðið í gegnum íbúaapp Akureyrarbæjar en tími vorverkanna í görðum bæjarbúa er hafinn og því líklegt að margir geri sér ferð á gámasvæðið með garðaúrgang, auk þess að losa sig þar við annað sem til fellur og skylt er að flokka.

Rafræna gámakortið kemur í stað gömlu pappakortanna sem fólk hefur notað fram að þessu. Rafræna kortið hefur fólk við höndina í símanum sínum og hakar við í appinu þegar farið er með úrgang til losunar. Hverri fasteign fylgja 16 klipp á ári en aðeins einn eigandi getur sótt inneign fyrir hverja fasteign. Viðkomandi getur hins vegar gefið klipp áfram til annarra fjölskyldumeðlima. Auk þess er hægt að kaupa inneign í appinu ef 16 klipp duga ekki yfir árið. Rétt er að geta þess að gömlu pappakortin gilda enn fyrir þau sem vilja.

Hér eru ítarlegar leiðbeiningar um notkun rafræna gámakortsins í íbúaappinu.

Auk rafræna gámakortsins inniheldur íbúaappið sérstaka gátt sem gefur fólki kost á að senda sveitarfélaginu ábendingar um ýmislegt sem betur má fara eða hrósa því sem vel er gert. Einnig eru í appinu tilkynningar frá sveitarfélaginu, sorphirðudagatal, upplýsingar um stofnanir, viðburðadagatal og fleira.

Bæjarbúar eru eindregið hvattir til að prófa appið en það er hægt að sækja bæði í gegnum Appstore og Google Play.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan