Velferðarráð

1337. fundur 21. apríl 2021 kl. 14:00 - 16:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: María Sigurbjörg Stefánsdóttir
Dagskrá

1.Stuðnings- og stoðþjónusta á velferðarsviði

Málsnúmer 2021040809Vakta málsnúmer

Kynning á umfangi heimaþjónustu 2020.

Lagt fram minnisblað um stöðuna í heimaþjónustunni m.t.t. húsnæðismála frá Bergdísi Ösp Bjarkadóttur forstöðumanni heimaþjónustu A, Elfu Björk Gylfadóttur forstöðumanni heimaþjónustu B og Hlyni Má Erlingssyni forstöðumanni heimaþjónustu Stoð sem sátu fundinn undir þessum lið.

Velferðarráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs, Guðrúnu Sigurðardóttur, að vinna málið áfram í samráði við umhverfis- og mannvirkjasvið.

2.Velferðarráð - málefni fatlaðs fólks - úttekt 2021

Málsnúmer 2021023280Vakta málsnúmer

Tekið til umræðu verkefni T40 úr nýlegri úttekt í málaflokki fatlaðra.

Um er að ræða stefnumótun varðandi framtíðaruppbyggingu í málefnum fatlaðs fólks. Markmiðið er að meta þörf fyrir uppbyggingu á húsnæði í málaflokknum næstu 8 -10 ár hvað varðar búsetu og virkni.

Tekin fyrir tillaga Guðrúnar Sigurðardóttur sviðsstjóra velferðarsviðs um skipan vinnuhóps til þess að vinna þetta verkefni.
Velferðarráð samþykkir tillöguna og tilnefnir Heimi Haraldsson S-Lista og Hermann Inga Arason V-Lista í vinnuhópinn.

3.Velferðarráð - málefni fatlaðs fólks - úttekt 2021

Málsnúmer 2021023280Vakta málsnúmer

Tekið fyrir verkefni T29 í nýlegri úttekt dagsettri 19. apríl 2021 í málaflokki fatlaðra.

Lagt fram minnisblað Svanborgar Bobbu Guðgeirsdóttur forstöðumanns sem sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir tillögu sem lögð var fram í minnisblaði Svanborgar Bobbu Guðgeirsdóttur forstöðumanns Plastiðjunnar Bjargs-Iðjulundar.

Fundi slitið - kl. 16:30.