Velferðarráð

1328. fundur 04. nóvember 2020 kl. 14:00 - 16:40 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri öa
  • Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri búsetusviðs
  • Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Dagskrá
Petrea Ósk Sigurðardóttir B-lista sat fundinn í forföllum Gunnfríðar Elínar Hreiðarsdóttur.

1.Stjórnkerfisbreytingar í velferðarþjónustu

Málsnúmer 2020050662Vakta málsnúmer

Lögð fram greinargerð um stjórnkerfisbreytingar í velferðarþjónustu dagsett 19. október 2020.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fundinn undir þessum lið.

2.Memaxi - samningur

Málsnúmer 2020100830Vakta málsnúmer

Kynntur samstarfssamningur Akureyrarbæjar og Memaxi.

Arnþrúður Eik Helgadóttir iðjuþjálfi í heimaþjónustu á búsetusviði sat fundinn undir þessum lið.

3.Búsetusvið - samningur við HSN um velferðartækni

Málsnúmer 2020100849Vakta málsnúmer

Búsetusvið gerði samstarfssamning við Heilbrigðisstofnun Norðurlands í tengslum við innleiðingu á Memaxi í þjónustu sviðsins. Samningurinn styður búsetusvið í nauðsynlegum tæknilausnum s.s. uppsetningu á búnaði í spjaldtölvur.

Arnþrúður Eik Helgadóttir iðjuþjálfi í heimaþjónustu á búsetusviði sat fundinn undir þessum lið.


Myndbandið Skjáheimsóknir velferðartæknismiðju Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar var sýnt á fundinum, sjá má myndbandið undir slóðinni: https://youtu.be/Ji2-ozUCQwY

4.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2020

Málsnúmer 2020040595Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit búsetusviðs, fjölskyldusviðs og Öldrunarheimila Akureyrar janúar - september 2020.

Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs og Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA sátu fundinn undir þessum lið.

5.Öldrunarheimili Akureyrarbæjar - ársskýrslur og rekstraryfirlit

Málsnúmer 2018030314Vakta málsnúmer

Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA lagði fram samantekt um rekstur ÖA fyrir allt árið 2019. Um er að ræða yfirlitsmyndir og skýringar um þróun nokkurra þátta í rekstri ÖA, líkt og hefur verið gefið út á síðustu árum. Að því loknu var nauðsyn á endurnýjun símkerfis ÖA kynnt.

6.Öldrunarþjónusta - biðlistar

Málsnúmer 2016020149Vakta málsnúmer

Hjúkrunarforstjóri ÖA, Helga Guðrún Erlingsdóttir, lagði fram yfirlit um fjölda einstaklinga sem metnir eru af færni- og heilsumatsnefnd í þörf fyrir dvalar- og hjúkrunarrými 1. nóvember ásamt upplýsingum um fjölda umsækjenda á biðlista eftir dagþjálfun.

7.Málefni í vinnslu og gögn frá SFV

Málsnúmer 2015040217Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 20. október 2020 ásamt viðhengjum frá SFV (Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu) sem varðar umsagnir um frumvarp til fjárlaga og fjármálaáætlun.

8.KAON - styrkbeiðni til velferðarráðs

Málsnúmer 2020090813Vakta málsnúmer

Umsókn frá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis um styrk að upphæð kr. 7.200.000 til þess að tryggja áframhaldandi rekstur þjónustumiðstöðvar félagsins.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.

9.Skógarlundur - styrkbeiðni til velferðarráðs

Málsnúmer 2020090739Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Skógarlundi um styrk að upphæð kr. 400.000 til kaupa á búnaði varðandi sýndarveruleika.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.

10.Stígamót - styrkbeiðni fyrir árið 2020

Málsnúmer 2019100322Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Stígamótum þar sem óskað er eftir styrk til rekstrarins fyrir árið 2020.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.

11.Skóla- og skammtímavistun Akureyrarbæjar - styrkbeiðni til velferðarráðs

Málsnúmer 2020090848Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn frá skóla- og skammtímavistun Akureyrarbæjar að upphæð kr. 1.000.000 til þess að útbúa skynörvunarherbergi.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.

12.Múrbrjótar - styrkbeiðni til velferðarráðs

Málsnúmer 2020090721Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi FF Múrbrjóta um styrk vegna fótboltaæfinga að upphæð kr. 121.500 sem yrði ráðstafað til þess að greiða niður leigu á tímum í íþróttaaðstöðu Akureyrarbæjar.
Velferðarráð samþykkir styrk til FF Múrbrjóta að upphæð kr. 121.500.

13.Rauði krossinn - stuðningur við starfsemi Eyjafjarðardeildar

Málsnúmer 2020090570Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Rauða krossinum við Eyjafjörð dagsett 3. september 2020 þar sem óskað er eftir stuðningi við starfsemi deildarinnar að upphæð kr. 600.000 til þess að geta sinnt laugardagsopnun í Lautinni.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.

14.Rauði krossinn - styrkbeiðni til velferðarráðs

Málsnúmer 2020090811Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um styrk frá Rauða krossinum við Eyjafjörð að upphæð kr. 500.000 til þess að styrkja starf heimsóknarvina og símavina.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.

15.Þroskahjálp - styrkbeiðni til velferðarráðs

Málsnúmer 2020090818Vakta málsnúmer

Umsókn um styrk frá Þroskahjálp á Norðurlandi eystra að upphæð kr. 250.000 til þess að starfrækja systkinasmiðju vorið 2021.
Velferðarráð samþykkir styrk til Þroskahjálpar á Norðurlandi eystra að upphæð kr. 250.000.

Fundi slitið - kl. 16:40.