Velferðarráð

1316. fundur 05. febrúar 2020 kl. 14:00 - 16:09 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri búsetusviðs
  • Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Dagskrá
Róbert Freyr Jónsson L-lista og varamaður hans boðuðu forföll.

1.Skammtímavistun reglur 2019-20

Málsnúmer 2019080549Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurskoðuðum reglum um skammtímaþjónustu fyrir fötluð börn. Málið var áður á dagskrá 2. október sl.
Velferðarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til bæjarráðs.

2.Búsetusvið - kynning á þjónustu

Málsnúmer 2019030223Vakta málsnúmer

Arna Jakobsdóttir forstöðumaður kynnti þjónustuna í Hafnarstræti 28-30.

Farið var að því loknu í heimsókn á heimilið og í Hafnarstræti 16 þar sem Gestur Guðrúnarson forstöðumaður kynnti þjónustuna.

Fundi slitið - kl. 16:09.