Umhverfisnefnd

68. fundur 13. desember 2011 kl. 16:15 - 17:35 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hulda Stefánsdóttir formaður
  • Páll Steindór Steindórsson
  • Kristinn Frímann Árnason
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Valdís Anna Jónsdóttir
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson fundarritari
Dagskrá

1.Sorpmál - kynning á stöðu

Málsnúmer 2010120023Vakta málsnúmer

Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur fór yfir stöðuna í málaflokknum.

Umhverfisnefnd þakkar bæjartæknifræðingi kynninguna.

2.Fráveita - upplýsingar um stöðu mála 2011

Málsnúmer 2011120044Vakta málsnúmer

Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur fór yfir stöðu fráveitumála sveitarfélagsins.

Umhverfisnefnd þakkar bæjartæknifræðingi kynninguna.

Valdís Anna Jónsdóttir S-lista óskar bókað:

Ég harma þá ákvörðun meirihluta L-listans að fresta framkvæmdum við fráveitumál bæjarins um 2 ár. Málið er brýnt umhverfismál sem þarf að laga hið fyrsta og getur haft mikil áhrif á starfsleyfi ýmissa fyrirtækja í bænum, sé ekkert gert. Jafnframt lýsi ég yfir óánægju með að ekki hafi verið kallaður til fagaðili (heilbrigðiseftirlit) til að fara yfir stöðu mála líkt og ég óskaði eftir.

3.Ársskýrslur náttúruverndar-/umhverfisnefnda sveitarfélaganna - sniðmát

Málsnúmer 2011120045Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

4.Hvítbók í náttúruvernd

Málsnúmer 2011120054Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar hvítbók í náttúruvernd sem umhverfisráðuneytið gaf út.

Umhverfisnefnd fagnar endurskoðun náttúruverndarlaga nr. 44/1999 og svokallaðrar Hvítbókar og telur mikilvægt að sem víðtækust sátt náist um endurskoðunina. Ráðið hefði talið eðlilegt að fulltrúi sveitarfélaganna hefði átt sæti í stýrihópi verkefnisins til að tryggja hagsmuni þeirra sem eru miklir. Ráðið telur mikilvægt að gott samstarf verði haft við sveitarfélögin í landinu og aðra hagsmunaaðila vegna umfangs verkefnisins. Einnig þeirra áhrifa sem lögin hafa og geta haft vegna hugsanlegra breytinga á þeim á stjórnun, rekstur og kostnað sveitarfélaga.

Fundi slitið - kl. 17:35.