Umhverfisnefnd

58. fundur 30. mars 2011 kl. 16:00 - 16:50 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigmar Arnarsson formaður
  • Hulda Stefánsdóttir
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Kolbrún Sigurgeirsdóttir
  • Valdís Anna Jónsdóttir
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson fundarritari
Dagskrá

1.Sorphreinsun frá stofnunum Akureyrarkaupstaðar

Málsnúmer 2011030035Vakta málsnúmer

Karl Guðmundsson verkefnastjóri mætti á fundinn og gerði grein fyrir þeim breytingum sem á útboðsgögnum hafa orðið frá því nefndin kom síðast saman þann 8. mars 2011.

Umhverfisnefnd þakkar Karli fyrir góða kynningu á gögnum fyrir væntanlegt útboð á sorphreinsun frá stofnunum Akureyrarkaupstaðar.

2.Vatnsaflsvirkjun í Glerárdal - frumathugun

Málsnúmer 2010030142Vakta málsnúmer

Petrea Ósk Sigurðardóttir Framsóknarflokki og Valdís Anna Jónsdóttir Samfylkingu óska að eftirfarandi sé bókað:

Við lýsum yfir mikilli óánægju með að málefni Fallorku, vegna virkjunar í Glerárdal, skuli ekki
hafa borist umhverfisnefnd til umsagnar. Við teljum eðlilegt að þetta mál hefði fengið umræðu og afgreiðslu í fagnefndum bæjarins en ekki eingöngu í bæjarráði. Mikilvægt er að skoða málið frá öllum hliðum til að tryggja að mismunandi sjónarmið og rökstuðningur fái umræðu innan stjórnkerfis bæjarins áður en ákvörðun er tekin.

Fundi slitið - kl. 16:50.