Umhverfis- og mannvirkjaráð

144. fundur 29. ágúst 2023 kl. 08:15 - 11:15 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Inga Dís Sigurðardóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Sindri Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
  • Anton Bjarni Bjarkason áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
  • Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista sat fundinn í fjarveru Jönu Salóme I. Jósepsdóttur.

1.Samningur um sjúkraflug - Sjúkratryggingar Íslands

Málsnúmer 2019020255Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi endurnýjun á samningum við Sjúkratryggingar Íslands um sjúkraflutninga.

Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð áréttar mikilvægi þess að faglega sé staðið að starfsemi sjúkraflutninga á landi og í lofti. Til að svo geti orðið er brýnt að ríkið fjármagni sinn hlut í verkefninu með viðunandi hætti og leggi fram þann búnað sem nauðsynlegur er.

2.Félagssvæði KA - stúka, félagsaðstaða og völlur

Málsnúmer 2022110164Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 23. ágúst 2023 varðandi opnun verðfyrirspurnar vegna kaupa á girðingu á KA svæðinu. Eitt tilboð barst fyrir auglýstan tíma.

Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði í girðinguna.

3.Skautahöllin á Akureyri - viðhald á húsnæði

Málsnúmer 2022051058Vakta málsnúmer

Staðan á framkvæmdum við félagsaðstöðu í Skautahöllinni á Akureyri kynnt.

Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.

4.Fjárfestingaráætlun 2024

Málsnúmer 2023050623Vakta málsnúmer

Lagður fram til umræðu undirbúningur að eignfærsluáætlun vegna áranna 2024-2027.

Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda og Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sátu fundinn undir þessum lið.

5.Nonnahagi - þjónustuíbúðir

Málsnúmer 2023020044Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á undirbúningi við byggingu þjónustuíbúða í Nonnahaga.

6.Glerárdalur - stígagerð

Málsnúmer 2020050067Vakta málsnúmer

Staða framkvæmda við stíg inn Glerárdal kynnt.

7.Sláttur á Akureyri 2022-2023

Málsnúmer 2022050181Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi framlenginu á samningum um slátt á Akureyri.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja samningana um eitt ár.

8.Beitarhólf í eigu Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2021110971Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi uppsögn á leigu beitarhólfa í Skjaldarvík.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að segja upp samningi um beitarhólf í Skjaldarvík.

9.Fjárhagsáætlun 2024

Málsnúmer 2023081139Vakta málsnúmer

Lögð fram húsaleiguáætlun fyrir árið 2024.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða húsaleiguáætlun.

Fundi slitið - kl. 11:15.