Umhverfis- og mannvirkjaráð

69. fundur 29. nóvember 2019 kl. 08:15 - 11:15 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Svifryks- og hálkuvarnir

Málsnúmer 2016050038Vakta málsnúmer

Farið yfir reynslu síðustu vikna, rædd staða aðgerðaáætlunar og lausnir á svifryksvandanum.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.
Það er forgangsmál hjá Akureyrarbæ að fækka þeim dögum á ári hverju sem svifryk fer yfir heilsuverndarmörk, enda er talið að það sé fjöldi ótímabærra dauðsfalla á ári hverju á Íslandi vegna svifryks. Undanfarnar vikur hefur verið notaður sjór og saltvatn á götur til að binda ryk og hefur það virkað mjög vel til að hemja rykið, en hins vegar haft þá óheppilegu hliðarverkun að þegar hitastig fer yfir frostmark þá myndast leðja á götunum. Undirliggjandi ástæða þess er að göturnar eru skítugar. Nú er unnið að því að móta stefnu um aðgerðir gegn hálku og svifryki, og mun hún meðal annars fela í sér aukinn snjómokstur og að göturnar verði þrifnar oftar og betur en tíðkast hefur. Því er lagt til að Akureyrarbær kaupi nýjan og öflugan bíl til að sópa og þvo götur. Leitast verður við að finna heildarlausn sem felur í sér mikinn árangur í baráttu við svifryk og tryggir jafnframt viðunandi hálkuvarnir og sem mesta sátt á meðal bæjarbúa.



Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að framkvæma verðkönnun á götusópum og ljúka við aðgerðaáætlun varðandi svifryk og hálkuvarnir.

2.Skógræktarfélag Eyfirðinga - samningur

Málsnúmer 2019090381Vakta málsnúmer

Ólafur Thoroddsen formaður Skógræktarfélags Eyfirðinga, Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri SE og Óli Þór Jónsson stjórnarmaður SE mættu á fundinn og kynntu samstarf Akureyrarbæjar og Skógræktarfélagsins.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna og óskar eftir því við umhverfis- og mannvirkjasvið að skoða færar leiðir í endurnýjun skógræktarsamnings og leggja þær fyrir ráðið í framhaldinu.

3.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2020

Málsnúmer 2019060039Vakta málsnúmer

Farið yfir kostnað sem lendir utan fjárhagsramma.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.

4.Brú - Eyjafjarðará vesturkvísl

Málsnúmer 2019110327Vakta málsnúmer

Lögð fyrir niðurstaða útboðs á stáli fyrir byggingu brúar yfir Eyjafjarðará vesturkvísl.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Ferro Zink upp á kr. 19.806.482.

5.Eyrarlandsvegur - göngustígur - fallvörn við Akureyrarkirkju

Málsnúmer 2019110460Vakta málsnúmer

Fanney Hauksdóttir arkitekt hjá AVH kom og kynnti útfærslu á gerð handriðs sem þarf að setja sem fallvörn við göngustíg við Akureyrarkirkju.

Andrea Sif Hilmarsdóttir verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framsetta útfærslu á uppsetningu handriðsins.

6.Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings

Málsnúmer 2015030205Vakta málsnúmer

Fanney Hauksdóttir arkitekt hjá AVH kom og kynnti teikniningar af nýju siglingahúsi Nökkva sem ætlað er að einfalda og létta húsnæðið frá fyrri teikningum.

Andrea Sif Hilmarsdóttir verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.

7.Miðhúsabraut - frárein að Bónus

Málsnúmer 2019110461Vakta málsnúmer

Kynntar fyrirætlanir um framkvæmdir við að- og frárein inn á bílaplan Bónus við Kjarnagötu frá Miðhúsabraut.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í útboð á framkvæmdinni.
Fylgiskjöl:

8.Hof menningarhús - neyðarlýsing

Málsnúmer 2016050105Vakta málsnúmer

Farið yfir minnisblað dagsett 15. nóvember 2019 varðandi endurnýjun á neyðarljósum í Hofi menningarhúsi.

9.Skjaldarvík - framlenging leigusamnings

Málsnúmer 2018110055Vakta málsnúmer

Kynnt staða viðræðna um endurnýjun leigusamnings um Skjaldarvík.

10.Glerárholt - kaup

Málsnúmer 2019110468Vakta málsnúmer

Rætt mögulegt kauptilboð í Glerárholt.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gera tilboð í Glerárholt með fyrirvara um samþykki bæjarráðs fyrir kaupunum.

11.Gránufélagsgata 22 - rif

Málsnúmer 2018120026Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fyrirhuguð rif á fasteign.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir niðurrif á fasteigninni og að leitað verði tilboða í framkvæmdina.

12.Sandgerðisbót - Byrgi - niðurrif

Málsnúmer 2019110467Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fyrirhuguð rif á fasteign.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir niðurrif á fasteigninni og að leitað verði tilboða í framkvæmdina.

13.Ytra-Krossanes - niðurrif

Málsnúmer 2019110465Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fyrirhuguð rif á fasteign.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir niðurrif á fasteigninni og að leitað verði tilboða í framkvæmdina.

14.Naust - hlaða F2144599 - niðurrif

Málsnúmer 2019110466Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fyrirhuguð rif á fasteign.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir niðurrif á fasteigninni og að leitað verði tilboða í framkvæmdina.

15.Gjaldskrár umhverfis- og mannvirkjasviðs 2020

Málsnúmer 2019090332Vakta málsnúmer

Gjaldskrá Slökkviliðs Akureyrar fyrir árið 2020 kynnt.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir gjaldskrá Slökkviliðs Akureyrar fyrir árið 2020 óbreytta frá árinu 2019.

16.Verkfundargerðir 2019

Málsnúmer 2019010182Vakta málsnúmer

Eftirfarandi fundargerðir lagðar fram á fundinum:



Klettaborg 43: 11. verkfundur dagsettur 14. nóvember 2019.

Glerárskóli leikskóli verkefnislið: 16.- 19. verkefnisliðsfundur dagsettir 1. og 23. janúar og 6. og 20. febrúar 2019.

Glerárskóli leikskólalóð: 1.- 8. fundur dagsettir 7. og 15. maí, 20. og 27. ágúst, 3., 11. og 17. september 2019.

Glerárskóli leikskóli umferðarmál: 1.- 6. fundur dagsettir 20. og 27. maí, 6., 13. og 18. júní og 1. júlí 2019.

Glerárskóli leikskóli: 1.- 21. hönnunarfundur dagsettir 16. og 30. janúar, 20. og 26. febrúar, 4. mars, 3., 10. og 24. apríl, 8., 15., 22. og 29. maí, 26. júní, 7., 14. og 28. ágúst, 11. september, 2., 9. og 16. október 2019.

Fundi slitið - kl. 11:15.