Umhverfis- og mannvirkjaráð

19. fundur 29. september 2017 kl. 08:15 - 10:35 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
  • Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir Forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá
Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista mætti í forföllum Hermanns Inga Arasonar.

1.Gatnamót Glerárgötu og Gránufélagsgötu

Málsnúmer 2017090292Vakta málsnúmer

Lagt fram tilboð sem barst í framkvæmdir við að setja umferðarljós á gatnamót Glerárgötu og Gránufélagsgötu.

Eitt tilboð barst frá G.Hjálmarssyni hf. að upphæð kr. 24.059.500 sem er um 153% af kostnaðaráætlun.
Umhverfis- og mannvirkjaráð hafnar tilboðinu.

2.Fjárhagsáætlun 2018 - umhverfis- og mannvirkjasvið

Málsnúmer 2017050203Vakta málsnúmer

Unnið að heildaráætlun ársins 2018 fyrir umhverfis- og mannvirkjasvið.

Fundi slitið - kl. 10:35.