Umhverfis- og mannvirkjaráð

2. fundur 27. janúar 2017 kl. 08:15 - 09:45 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Jón Orri Guðjónsson
  • Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá

1.Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna - innleiðing

Málsnúmer 2014030109Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 17. janúar 2017 um verkefnið þar sem óskað er eftir tilnefningu nefndarmanns í stýrihóp vegna innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð skipar Ingibjörgu Ólöfu Isaksen B-lista í stýrihópinn.

2.Molta - samningur um verktökuvinnu og sérfræðiþjónustu sem Molta ehf hyggst vinna fyrir Flokkun ehf

Málsnúmer 2017010358Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur á milli Moltu ehf og Flokkunar ehf dagsettur 13. janúar 2017 ásamt fundargerð frá hluthafafundi Flokkunar ehf dagsett 13. janúar 2017.

3.Leiguíbúðir - bygging lítilla íbúða

Málsnúmer 2017010357Vakta málsnúmer

Lögð fram greinargerð dagsett 25. janúar 2017 um framkvæmdirnar ásamt umsókn um stofnframlög.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að vinna áfram að málinu og sækja um stofnframlögin.

4.Áætlun umhverfis- og auðlindaráðherra vegna útskiptingar dekkjakurls á leik- og íþróttavöllum

Málsnúmer 2017010059Vakta málsnúmer

Lögð fram aðgerðaráætlun umhverfis- og auðlindaráðuneytis dagsett 6. janúar 2017 vegna útskiptingar dekkjakurls á leik- og íþróttavöllum.
Framkvæmdaáætlun Akureyrarbæjar rúmast vel innan marka aðgerðaráætlunar umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

5.SVA - samningur um birtingu leiðakerfis og aksturs á Akureyri á heimasíðu Strætó bs og í appi

Málsnúmer 2017010342Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi við Strætó bs dagsett 17. janúar 2017 um birtingu leiðakerfis og aksturs strætisvagna á Akureyri á heimasíðu Strætó bs og í Strætó appinu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samninginn og felur sviðsstjóra að ganga frá honum.

6.Íshokkísamband Íslands - styrkbeiðni vegna HM kvenna á Akureyri 2017

Málsnúmer 2016120020Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 26. janúar 2017 vegna beiðnar frá Skautafélagi Akureyrar dagsett 11. janúar 2017 um að búningsklefar verði stækkaðir fyrir heimsmeistaramót kvenna í íshokkí sem fram fer á Akureyri í febrúar og mars 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í framkvæmdirnar og er áætlaður kostnaður um 3,6 milljónir króna.

7.Verkfundargerðir 2017

Málsnúmer 2017010343Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:

Bygging lítilla íbúða: 6. fundur verkefnisliðs dagsettur 19. desember 2016.

Nökkvi: 8.- 10. fundur verkefnisliðs dagsettir 21. nóvember og 15. desember 2017 og 12. janúar 2017.

Sundlaug Akureyrar rennibrautir og pottar: 1.- 5. verkfundur dagsettir 2. og 23. nóvember og 7. desember 2016, 4. og 18. janúar 2017.

Fundi slitið - kl. 09:45.