Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

228. fundur 28. júní 2013 kl. 08:15 - 09:45 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Sigríður María Hammer varaformaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Guðgeir Hallur Heimisson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Framkvæmdastjóri FA - afleysing 2013-2014

Málsnúmer 2013060250Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri mætti á fundinn og fór yfir umsóknir um starf framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar og mælti með því að Guðni Helgason byggingaverkfræðingur verði ráðinn í starfið.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa máls.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar styður ákvörðun bæjarstjóra.

2.Borgargil 1 - 6 - íbúðir fyrir fötluð ungmenni

Málsnúmer 2011120037Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður verðkannana um burðarþols-, lagna- og raflagnahönnun hússins.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðendur á grundvelli tilboða þeirra.

3.Búnaðarkaup fyrir íþróttamannvirki - óskir íþróttaráðs um aðkomu Fasteigna Akureyrarbæjar að endurnýjun búnaðar

Málsnúmer 2012100038Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 20. júní 2013:
Tillögur forstöðumanna íþróttamannvirkja um endurnýjun og viðhald áhalda og búnaðar kynntar.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar frestar afgreiðslu málsins.

4.Hof og Samkomuhús - óskir um búnaðarkaup

Málsnúmer 2013040260Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dags. 30. apríl 2013 um fjárveitingu til búnaðarkaupa vegna breytinga Póst- og fjarskiptastofnunar á tíðnisviði þráðlauss hljóðbúnaðar þar sem 4G er á því tíðnisviði í Hofi og Samkomuhúsinu á Akureyri ásamt öðrum búnaðarkaupum.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir búnaðarkaup vegna tíðnibreytinga á þráðlausum hljóðbúnaði fyrir Hof menningarhús kr. 4.500.000 og fyrir Samkomuhúsið kr. 2.000.000 samkvæmt framlögðum gögnum.

Fundi slitið - kl. 09:45.