Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

222. fundur 22. mars 2013 kl. 08:15 - 10:35 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Guðgeir Hallur Heimisson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Sundlaug Grímseyjar - rakaskemmdir í þaki

Málsnúmer 2012050152Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dags. 19. mars 2013 vegna yfirferðar tilboðs frá BB Byggingum ehf sem barst í endurbæturnar á þaki sundlaugarinnar.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við BB Byggingar ehf.

2.Þórunnarstræti 99 - skammtímavistun fyrir fatlaða

Málsnúmer 2012090189Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dags. 18. mars 2013 vegna óska um búnaðarkaup fyrir skammtímavistunina.

Afgreiðslu frestað.

3.KA svæði - gervigrasvöllur

Málsnúmer 2012120333Vakta málsnúmer

Farið yfir tilboð sem bárust vegna útboðs á snjóbræðslu- og hitalögnum í gervigrasvöll á íþróttasvæði KA. Sjá nánar í fylgigögnum.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Bút ehf.

4.KA svæði - gervigrasvöllur

Málsnúmer 2012120333Vakta málsnúmer

Farið yfir tilboð sem bárust vegna útboðs á rafkerfi og flóðlýsingu fyrir gervigrasvöll á íþróttasvæði KA. Sjá nánar í fylgigögnum.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Rafmenn ehf.

5.KA svæði - gervigrasvöllur

Málsnúmer 2012120333Vakta málsnúmer

Farið yfir tilboð sem bárust vegna útboðs á lóðafrágangi fyrir gervigrasvöll á íþróttasvæði KA. Sjá nánar í fylgigögnum.

Afgreiðslu frestað.

6.Útboð - málun og múrviðgerðir 2013

Málsnúmer 2013030096Vakta málsnúmer

Farið yfir tilboðin sem bárust í utanhússmálun og múrviðgerðir á eftirtöldum eignum Fasteigna Akureyrarbæjar: Lundarskóli, Amtsbókasafn, Rósenborg og Hákarlasafnið í Hrísey. Sjá nánar í fylgigögnum.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Litblæ ehf í Amtsbókasafninu og Hákarlasafninu í Hrísey.

Stjórnin samþykkir einnig að fresta afgreiðslu á tilboðum í Lundarskóla og Rósenborg.

7.Glerárskóli - kennslueldhús - hússtjórnarstofa

Málsnúmer 2013010309Vakta málsnúmer

Farið yfir tilboðin sem bárust í endurbætur á hússtjórnarstofunni. Sjá nánar í fylgigögnum.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Trésmiðju Kristjáns Jónassonar ehf.

8.Verkfundargerðir FA 2013

Málsnúmer 2013010321Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
KA svæði gervigrasvöllur - G. Hjálmarsson hf: 1.- 5. verkfundur dags. 25. og 30. janúar, 11. og 22. febrúar og 15. mars 2013.

9.Sláttur - lóðahirðing - stofnanalóðir FAK 2013-2014

Málsnúmer 2013030109Vakta málsnúmer

Rætt um slátt og hirðingu á stofnanalóðum Fasteigna Akureyrarbæjar.
Forsvarsmenn framkvæmdadeildar Helgi Már Pálsson, Jón Birgir Gunnlaugsson og Tómas Björn Hauksson sátu fundinn undir umræðu og afgreiðslu þessa liðar.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra að fara í viðræður við framkvæmdadeild um slátt og hirðingu á öllum lóðum Fasteigna Akureyrarbæjar.

Njáll Trausti Friðbertsson D-lista, óskar bókað:

Ég tel óeðlilegt að Fasteignir Akureyrarbæjar semji á þessum nótum á meðan ekki er ljóst hvert fjárhagslegt hagræði Fasteigna er með slíku fyrirkomulagi. Ekki var óskað eftir tilboðum frá framkvæmdadeild í verkið. Þannig að ekki er ljóst hver sparnaðurinn er með þessu.

Fundi slitið - kl. 10:35.