Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

219. fundur 18. janúar 2013 kl. 08:15 - 10:10 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Guðgeir Hallur Heimisson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Þórunnarstræti 99 - skammtímavistun fyrir fatlaða

Málsnúmer 2012090189Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á væntanlegum framkvæmdum.

2.Skjaldarvík - leiga húsnæðis

Málsnúmer 2004010122Vakta málsnúmer

Rætt um húsaleigu í Skjaldarvík og framtíðarsýn.

3.Íþróttamiðstöð Giljaskóla - kærumál

Málsnúmer 2009100042Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar yfirmatsgerð dómkvöddu matsmannanna Auðuns Elíassonar og Eyjólfs Þórs Þórarinssonar, dags. í desember 2012, vegna kæru Eyktar ehf gegn Akureyrarkaupstað.

4.Menningarhúsið Hof - rakastig í rýmum TÓNAK

Málsnúmer 2013010145Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dags. 29. nóvember 2012 frá Hjörleifi Erni Jónssyni skólastjóra Tónlistarskólans á Akureyri varðandi rakastig í rýmum skólans.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar óskar eftir greinargerð frá hönnuðum um málið.

5.Lögmannshlíð hjúkrunarheimili - vatnstjón 2013

Málsnúmer 2013010147Vakta málsnúmer

Farið yfir vatnstjónið sem varð 10. janúar 2013.

6.Ófyrirséð viðhald - útboð 2012

Málsnúmer 2012110178Vakta málsnúmer

Farið yfir niðurstöður útboðs á ófyrirséðu viðhaldi.

7.Glerárgata 26 - endurbætur til að auka öryggi starfsmanna

Málsnúmer 2013010070Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags. 17. janúar 2013 frá skrifstofustjóra Ráðhúss um breytingar á 2. og 3. hæð í Glerárgötu 26 til að auka öryggi starfsfólks.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að verða við erindinu og að fjárveiting til verkefnisins verði tekin af nýframkvæmdaáætlun ársins 2013.

8.KA svæði - gervigrasvöllur

Málsnúmer 2012120333Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar verksamningur við G. Hjálmarsson dags. 21. desember 2012 um gröft og fyllingu á gervigrasvellinum.

9.Félagslegar leiguíbúðir - úttekt/skýrsla 14. desember 2012

Málsnúmer 2012121194Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla vinnuhóps um félagslegar leiguíbúðir á Akureyri dags. 14. desember 2012.

10.Verkfundargerðir FA 2012

Málsnúmer 2012010240Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
KA svæði gervigrasvöllur: 1.- 4. fundur verkefnisliðs dags. 6., 11. og 18. desember 2012.
Naustaskóli 2. áfangi: SS Byggir ehf: 33.- 35. verkfundur dags. 13. og 27. nóvember og 11. desember 2012.

Fundi slitið - kl. 10:10.