Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

173. fundur 03. september 2010 kl. 11:30 - 12:25 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
Starfsmenn
  • Einar Jóhannsson
  • Valþór Brynjarsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Lundarskóli - tengigangur í lausar kennslustofur

Málsnúmer 2010080060Vakta málsnúmer

Farið yfir málið. Nýjar forsendur og kostnaðaráætlun fyrir framkvæmdina lagðar fram til kynningar.

Stjórnin felur starfsmönnum Fasteigna Akureyrarbæjar að vinna áfram að málinu.

2.Ytri-Skjaldarvík - beiðni um leigu á einbýlishúsi

Málsnúmer 2010090021Vakta málsnúmer

Tekið fyrir innkomið erindi frá Ólafi Aðalgeirssyni dags. 2. september 2010 þar sem hann óskar eftir að taka á leigu einbýlishúsið að Ytri-Skjaldarvík.

Afgreiðslu frestað og starfsmönnum Fasteigna Akureyrarbæjar falið að vinna áfram að málinu.

3.Hjúkrunarheimili Naustahverfi

Málsnúmer 2010050065Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu mála varðandi staðsetningu hjúkrunarheimilisins.

4.Naustaskóli - 2. áfangi

Málsnúmer 2010080059Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar skilamat fyrir áfanga 1 ásamt frumkostnaðaráætlun og endurskoðaðri áætlun frá 2009.

5.Verkfundargerðir FA 2010

Málsnúmer 2010010174Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram til kynningar á fundinum:
105. fundur byggingarnefndar menningarhúss dags. 17. ágúst 2010.
50.- 56. verkfundur útboðs 3 v/menningarhúss dags. 14. og 28. maí, 11. og 25. júní, 16. og 30. júlí og 20. ágúst 2010.
5. hönnunarfundur vegna hjúkrunarheimilis í Naustahverfi dags. 27. ágúst 2010.

Fundi slitið.

Fundi slitið - kl. 12:25.