Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

288. fundur 09. desember 2016 kl. 15:00 - 16:46 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Steindór Ívar Ívarsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir
Dagskrá
Þetta er seinasti fundur Stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar. Nýtt heiti samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar frá 3. janúar 2017 verður umhverfis- og mannvirkjaráð.

Helena Þuríður Karlsdóttir S-lista boðaði forföll fyrir sig og varamann.

1.Samgöngumiðstöð - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2016050294Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingu á nefndarmanni í verkefnisliði vegna byggingar samgöngumiðstöðvar.

Lagt er til að Eiríkur Jónsson S-lista taki sæti Höllu Bjarkar Reynisdóttur L-lista frá og með 1. janúar 2017.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir breytingarnar og leggur til að sá formaður sem tekur við um áramót taki sæti núverandi formanns í þeim verkefnisliðum sem hann starfar í.

2.Stöðuskýrslur FA 2016

Málsnúmer 2016040037Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 6 fyrir stjórn FA dagsett 8. desember 2016.

3.Fasteignir Akureyrarbæjar - starfsáætlun 2017

Málsnúmer 2016120041Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar starfsáætlun FA fyrir árið 2017.

4.Ófyrirséð viðhald - útboð 2016

Málsnúmer 2016120042Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar útboð á ófyrirséðu viðhaldi hjá FA fyrir árin 2017-2018.

5.Búnaðarkaup fyrir íþróttamannvirki - óskir íþróttaráðs um aðkomu Fasteigna Akureyrarbæjar að endurnýjun búnaðar

Málsnúmer 2016120043Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 26. september 2016 frá íþróttaráði þar sem óskað er eftir fjárveitingu til búnaðarkaupa í íþróttamannvirki bæjarins samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir beiðnina og leggur til að búnaðarkaup fyrir Hlíðarfjall og Reiðhöllina verði bókfærð á árinu 2016 en búnaðarkaup fyrir Íþróttamiðstöð Giljaskóla og Sundlaug Glerárskóla verði bókfærð á árinu 2017.

6.Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings

Málsnúmer 2015030205Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að hönnunarsamningi við AVH ehf dagsett 24. nóvember 2016.
Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir samninginn.

Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista sat hjá við afgreiðsluna.

7.Hof - beiðni um endunýjun á hljóðmixerum

Málsnúmer 2016120054Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um endurnýjun á hljóðmixerum í Hofi og staðfesting Akureyrarstofu dagsett 28. nóvember 2016. Áætlaður kostnaður við búnaðarkaupin er um 10 milljónir króna.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir búnaðarkaupin.

8.Önnur mál - stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar 2016

Málsnúmer 2016010047Vakta málsnúmer

Á þessum síðasta fundi stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar vill hún þakka starfsfólki Fasteigna Akureyrarbæjar fyrir gott og farsælt samstarf.

Fundi slitið - kl. 16:46.