Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

273. fundur 22. janúar 2016 kl. 08:15 - 09:30 Fundarherbergi FAK
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jón Orri Guðjónsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri
  • Steindór Ívar Ívarsson verkefnastjóri viðhalds
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Jón Orri Guðjónsson D-lista mætti í forföllum Njáls Trausta Friðbertssonar.

1.Hof menningarhús - skjávarpi í Hamraborg

Málsnúmer 2016010143Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá stjórn Akureyrarstofu dagsett 7. janúar 2016 um kaup á nýjum skjávarpa fyrir Hamraborg í Hofi.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir kaupin og að þau verði tekin af liðnum óráðstafað til búnaðarkaupa 2016.

2.Þórunnarstræti 99 - aðstaða fyrir Skátafélagið Klakk í kjallara

Málsnúmer 2014080046Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá samfélags- og mannréttindadeild um kaup á búnaði í nýja félagsaðstöðu Skátana í Þórunnarstræti 99.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir kaupin og að þau verði tekin af liðnum óráðstafað til búnaðarkaupa 2016.

Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista sat hjá við afgreiðsluna.

3.Listasafn - endurbætur

Málsnúmer 2014010168Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður verðkannana fyrir lagna- og loftræstihönnun og raflagnahönnun.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að samið verði við lægstbjóðendur, Mannvit í lagna- og loftræstihönnun og Raftákn í raflagnahönnun.

4.Efniskaup FA - útboð 2016

Málsnúmer 2015120016Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 19. janúar 2016 vegna niðurstöðu útboðsins.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að samið verði við þá aðila sem lagt er til í framlögðum gögnum.

5.Almenningssalerni undir kirkjutröppunum - beiðni um afnot

Málsnúmer 2016010154Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 10. nóvember 2015 frá Finni Sigurðssyni, Ingibjörgu Berglindi Guðmundsdóttur og Björgu Mörtu Gunnarsdóttur þar sem þau óska eftir afnotum af húsnæðinu.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar getur ekki orðið við erindinu að sinni. Framtíð húsnæðisins er í skoðun og liggur niðurstaða ekki fyrir enn sem komið er.

6.Félagslegar leiguíbúðir - framtíðarsýn

Málsnúmer 2016010150Vakta málsnúmer

Tilnefning nefndarmanns í verkefnislið vegna framtíðarsýnar fyrir félagslega húsnæðiskerfi Akureyrarbæjar.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar tilnefnir Höllu Björk Reynisdóttur L-lista í verkefnisliðið Ingibjörgu Ólöfu Isaksen B-lista til vara og óskar eftir tilnefningu frá velferðarráði, búsetudeild og fjölskyldudeild Akureyrarbæjar.

7.Fasteignir Akureyrarbæjar - úttekt á múrkerfum á húsum í eigu bæjarins

Málsnúmer 2016010152Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 19. janúar 2016 vegna fyrirspurnar Njáls Trausta Friðbertssonar D-lista um ástand múrkerfa á húseignum bæjarins.

Fundi slitið - kl. 09:30.