Almenningssalerni undir kirkjutröppunum - beiðni um afnot

Málsnúmer 2016010154

Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 273. fundur - 22.01.2016

Lagt fram erindi dagsett 10. nóvember 2015 frá Finni Sigurðssyni, Ingibjörgu Berglindi Guðmundsdóttur og Björgu Mörtu Gunnarsdóttur þar sem þau óska eftir afnotum af húsnæðinu.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar getur ekki orðið við erindinu að sinni. Framtíð húsnæðisins er í skoðun og liggur niðurstaða ekki fyrir enn sem komið er.