Stjórn Akureyrarstofu

77. fundur 03. ágúst 2010 kl. 10:00 - 11:55 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Jón Hjaltason
  • Sigmundur Einar Ófeigsson
  • Sigrún Stefánsdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
Dagskrá

1.Fjölskylduhátíð í Hrísey 2010 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2010050018Vakta málsnúmer

Erindi dags. 4. maí 2010 frá Kristni F. Árnasyni f.h. undirbúningsnefndar þar sem óskað er eftir fjárframlagi fyrir Fjölskylduhátíðina í Hrísey sem haldin var dagana 16.- 18. júlí 2010.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 100.000 til verkefnisins.

2.Stjórn Akureyrarstofu - fundaráætlun og helstu áhersluatriði 2010

Málsnúmer 2011020096Vakta málsnúmer

Rætt um helstu áherslur í starfi stjórnar Akureyrarstofu á næstu mánuðum og jafnframt um fundartíma og fundaráætlun.

Stjórnin samþykkir að sú áherslubreyting verði í störfum hennar að atvinnumál verði sett í forgang og jafnframt að kallað verði eftir ýmsum upplýsingum um ýmis mál er varða störf stjórnarinnar.

Samþykkt að fundir stjórnarinnar verði almennt haldnir á fimmtudögum kl. 16:00.

Fundi slitið - kl. 11:55.