Stjórn Akureyrarstofu

82. fundur 14. október 2010 kl. 08:00 - 10:20 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Sigmundur Einar Ófeigsson
  • Jón Hjaltason
  • Jóhann Jónsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2011 - stjórn Akureyrarstofu

Málsnúmer 2010100024Vakta málsnúmer

Áfram haldið vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2011. Farið var yfir mögulegar sparnaðar- og hagræðingarleiðir.
Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður kom á fundinn og fór yfir rekstur og starfsemi safnins auk mögulegra leiða til hagræðingar.
Gert er ráð fyrir að vinnu við fjárhagsáætlun ljúki á næsta fundi stjórnarinnar.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar Hólmkeli fyrir greinargóðar upplýsingar og gagnlegar umræður.

Fundi slitið - kl. 10:20.