Stjórn Akureyrarstofu

88. fundur 27. janúar 2011 kl. 16:00 - 18:45 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Jón Hjaltason
  • Sigmundur Einar Ófeigsson
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Endurskoðun menningarstefnu Akureyrarbæjar 2011

Málsnúmer 2011020012Vakta málsnúmer

Formaður, framkvæmdastjóri og verkefnisstjóri viðburða og menningarmála unnu tillögu að skipulagi og tímaáætlun fyrir endurskoðun menningarstefnunnar sem lögð var fram á fundinum.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að hefja vinnu við endurskoðun menningarstefnu Akureyrarbæjar. Skipaðir verða 5 vinnuhópar sem gera stöðumat m.v. eldri menningarstefnu og koma með hugmyndir að nýjum markmiðum og verkefnum. Þann 31. mars 2011 er stefnt að því að halda opinn fund þar sem farið verður yfir vinnu hópanna og hin eiginlega stefna mótuð.

2.Opinn fundur um framtíðs sjávarútvegs og tengdra greina við Eyjafjörð

Málsnúmer 2011020013Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri greindi frá tilurð og undirbúningi að opnum fundi sem haldinn var í Hofi þann 1. febrúar sl., en Akureyrarstofa annaðist undirbúning fundarins fyrir hönd bæjarins. Skipuleggjendur auk bæjarins voru Samtök atvinnurekenda á Eyjafjarðarsvæðinu og verkalýðsfélögin í Eyjafirði.
Til kynningar.

3.Samráðsfundir með forstöðumönnum menningarstofnana 2011 - Menningarfélagið Hof

Málsnúmer 2011010066Vakta málsnúmer

Í samningi félagsins og Akureyrabæjar er kveðið á um tvo samráðsfundi á ári með stjórn Akureyrarstofu. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvæmdastjóri félagsins og Freyja Dögg Frímannsdóttir fulltrúi Akureyrarbæjar í stjórninni mættu á fundinn og fóru yfir starfsemi félagsins og rekstur Hofs fyrstu mánuðina eftir opnun.

Stjórnin þakkar Freyju og Ingibjörgu fyrir greinargóðar upplýsingar og gagnlegar umræður. Fram kom að rekstur hússins hefur farið vel af stað og áhugi mikill bæði meðal þeirra sem framleiða og skipuleggja viðburði og almennra gesta sem þá sækja. Á fyrstu 5 mánuðum ársins komu um 100.000 gestir á margvíslega viðburði sem haldnir voru í Hofi.

Fundi slitið - kl. 18:45.