Stjórn Akureyrarstofu

239. fundur 19. október 2017 kl. 16:15 - 18:00 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Mínerva Björg Sverrisdóttir
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri
Dagskrá
Mínvera Björg Sverrisdóttir B-lista mætti í forföllum Sigfúsar Arnars Karlssonar.
Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi Æ-lista boðaði forföll. Enginn varamaður kom í hennar stað.

1.Markaðsstofa Norðurlands - starfsemi

Málsnúmer 2017100213Vakta málsnúmer

Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og Hjalti Páll Þórarinsson verkefnastjóri MN mættu á fundinn og fóru yfir starfsemi markaðsstofunnar og flugklasans Air 66N.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar þeim Arnheiði og Hjalta Páli fyrir greinargóða kynningu.

Unnar Jónsson vék af fundi kl. 17:08.

2.Íbúakort

Málsnúmer 2017090124Vakta málsnúmer

Framhald umræðu frá síðasta fundi.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að skipaður verði vinnuhópur með fulltrúum frá stjórnsýslu-, fjársýslu- og samfélagssviði bæjarins og felur hópnum að skila af sér tillögu um málið fyrir árslok.



Markmið með vinnu hópsins verði að þróa afsláttarkort sem færi þeim hagstæðari kjör sem nota tilgreinda þjónustu bæjarins mikið. Kortið myndi þá nýtast bæði þeim sem búa á Akureyri og þeim sem dvelja hér um lengri tíma. Þar sem innleiðing kortsins hefði í för með sér áhrif á gjaldskrá á fleiri en einu sviði er nauðsynlegt að stoðsvið bæjarins komi að vinnunni.

Fundi slitið - kl. 18:00.