Stjórn Akureyrarstofu

226. fundur 09. mars 2017 kl. 16:15 - 18:25 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson varaformaður
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs
  • Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnastjóri viðburða og menningarmála
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri
Dagskrá

1.Páll Björnsson - umsókn um styrk úr Húsverndarsjóði 2017

Málsnúmer 2017030043Vakta málsnúmer

Umsókn dagsett 1. febrúar 2017 frá Páli Björnssyni þar sem sótt er um styrk úr Húsverndarsjóði Akureyrar að upphæð kr. 250.000.

Hanna Rósa Sveinsdóttir sérfræðingur Minjasafnsins á Akureyri í húsverndarmálum sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 250.000 til verkefnisins.

2.Birgitta Guðrún S Ásgrímsdóttir f.h. eigenda Aðalstrætis 14 (norður hluti) - umsókn um styrk úr Húsverndarsjóði 2017

Málsnúmer 2017030042Vakta málsnúmer

Umsókn dagsett 30. janúar 2017 frá Birgittu Guðrúnu S Ásgrímsdóttur f.h. eigenda Aðalstrætis 14 (norður hluti) - þar sem sótt er um styrk úr Húsverndarsjóði Akureyrar að upphæð kr. 250.000.

Hanna Rósa Sveinsdóttir sérfræðingur Minjasafnsins á Akureyri í húsverndarmálum sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.

3.Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2017

Málsnúmer 2017030083Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit fyrir málaflokka stjórnar Akureyrarstofu fyrir fyrstu 2 mánuði yfirstandandi árs.

4.Samþykktir fastanefnda 2017

Málsnúmer 2017020082Vakta málsnúmer

Áfram haldið vinnu við endurskoðun samþykktar fyrir stjórn Akureyrarstofu.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir fyrirliggjandi drög með áorðnum breytingum.

5.Menningarsjóður 2017 - styrkveitingar

Málsnúmer 2017010109Vakta málsnúmer

Farið yfir umsóknir sem bárust í Menningarsjóð en umsóknarfrestur rann út þann 5. febrúar síðastliðinn. Alls barst 31 umsókn um verkefnastyrki úr Menningarsjóði og 10 umsóknir um samstarfssamninga.
Afgreiðsla styrkjanna fer fram á næsta fundi stjórnar.

Eva Dögg Fjölnisdóttir Æ-lista vék af fundi kl. 17:40 undir umræðum í 5. lið.

Fundi slitið - kl. 18:25.