Stjórn Akureyrarstofu

207. fundur 04. apríl 2016 kl. 14:30 - 15:26 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnastjóri viðburða og menningarmála
  • Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Starfslaun listamanna 2016 - Menningarsjóður

Málsnúmer 2016010025Vakta málsnúmer

Farið yfir umsóknir um starfslaun listamanna og tillögur ráðgjafahóps stjórnarinnar um afgreiðslu.
Stjórnin samþykkir tillögu ráðgjafahóps stjórnarinnar um hver hljóti starfslaun listamanna á starfslaunatímbilinu maí 2016 - júní 2017. Tilkynnt verður um niðurstöðuna á Vorkomu Akureyrarstofu á sumardaginn fyrsta næstkomandi.

2.Byggingarlistaverðlaun Akureyrar 2016

Málsnúmer 2016030173Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur ráðgjafahóps um byggingarlistaverðlaun 2016.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögur ráðgjafahóps um hver skuli hljóta byggingarlistaverðlaun 2016. Tilkynnt verður um niðurstöðuna á Vorkomu Akureyrarstofu á sumardaginn fyrsta næstkomandi.

3.Viðurkenningar Húsverndarsjóðs 2016 - viðhald eldri húsabygginga

Málsnúmer 2016030172Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögur ráðgjafahóps um hver skuli hljóta viðurkenningar Húsverndarsjóðs vegna viðhalds eldri húsa árið 2016. Tilkynnt verður um niðurstöðuna á Vorkomu Akureyrarstofu á sumardaginn fyrsta næstkomandi.

4.Ferðamálafélag Hríseyjar - samstarfssamningur 2016 - 2018

Málsnúmer 2016030174Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. mars 2016 frá Lindu Maríu Ásgeirsdóttur f.h. Ferðamálafélags Hríseyjar, þar sem óskað er eftir að samstarfssamningur Akureyrarstofu og félagsins verði endurnýjaður.
Stjórn Akureyrastofu samþykkir að fela framkvæmdastjóra að ganga til viðræðna við félagið um endurnýjun samnings til næstu 3 ára í samræmi við umræður á fundinum.

Fundi slitið - kl. 15:26.