Stjórn Akureyrarstofu

203. fundur 03. febrúar 2016 kl. 16:15 - 18:45 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Dagskrá
Anna Hildur Guðmundsdóttir L-lista boðaði forföll og varamaður mætti ekki í hennar stað.
Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi Æ-lista boðaði forföll og varamaður mætti ekki í hennar stað.

1.Ferðamálastefna

Málsnúmer 2014110220Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fyrstu drög að nýrri ferðamálastefnu.

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir verkefnisstjóri atvinnmála og María Helena Tryggvadóttir verkefnisstjóri ferðamála sátu fundinn undir þessu lið.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar þeim Maríu og Albertínu fyrir greinargóða kynningu og vísar drögunum til áframhaldandi vinnu í stýrihópi ferðamálastefnunnar. Jafnframt óskar stjórnin eftir hugmyndum og tillögum inn í markmiða- og verkefnakafla stefnunnar, frá nefndum og ráðum bæjarins og almenningi í gegnum heimasíðu bæjarins.

2.Listasumar og Akureyrarvaka - 2016

Málsnúmer 2016020010Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að grunnfyrirkomulagi og stjórnun Listasumars og Akureyrarvöku 2016.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillöguna og í samræmi við hana að skipaður verði ráðgjafahópur hátíðanna. Í honum sitji Hlynur Hallsson forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri, Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða og menningarmála og Hildur Friðriksdóttir fulltrúi í stjórn Akureyrarstofu.

3.Iðnaðarsafnið á Akureyri - skipun fulltrúa í stjórn

Málsnúmer 2010090020Vakta málsnúmer

Skipa þarf nýjan fulltrúa í stjórn Iðnaðarsafnsins en þar hefur sú breyting orðið að Helga Mjöll Oddsdóttir hefur látið af störfum.
Stjórn Akureyrarstofu skipar Huldu Sif Hermannsdóttur verkefnisstjóra viðburða og menningarmála á Akueyrarstofu sem fulltrúa í stjórnina.

Fundi slitið - kl. 18:45.